Flugvöllurinn: Meirihluti undirskrifta kemur frá íbúum höfuðborgarsvæðisins Hrund Þórsdóttir skrifar 29. ágúst 2013 18:30
Nær 60 þúsund hafa skrifað undir stuðningsyfirlýsingu um að flugvöllurinn verði áfram í Vatnsmýrinni, en undirskriftasöfnun fór af stað á lending.is fyrir tæpum tveimur vikum. Söfnunin fór mjög bratt af stað og þótt hún eigi að standa yfir til 20. september, þegar frestur rennur út til að gera athugasemdir við aðalskipulagstillögu Reykjavíkurborgar, er söfnunin þegar orðin sú fjölmennasta frá upphafi. Rúmlega 56 þúsund gildar undirskriftir söfnuðust gegn Icesave samningnum á sínum tíma. Skipting undirskrifta eftir landsvæðum gæti komið einhverjum á óvart, því meirihluti þeirra kemur frá íbúum höfuðborgarsvæðisins, eða 54%. 46% undirskrifta koma því frá landsbyggðinni. Um 32.400 íbúar á höfuðborgarsvæðinu hafa því skrifað undir og 27.600 landsmenn sem búa utan þess. Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur, hafði þetta að segja um söfnunina á mánudaginn. „Það sem er náttúrulega mjög sérstakt við þessar undirskriftir er að við vitum ekki hvert er hlutfall íbúa Reykjavíkur í þeim. Ég hef náttúrulega tekið við fjölda undirskriftalista, en ég veit ekki hver afstaða mín gagnvart undirskriftum íbúa utan Reykjavíkur er, ég bara hef aldrei staðið frammi fyrir því.“ Nú liggur ljóst fyrir að meirihluti undirskrifta kemur frá íbúum höfuðborgarsvæðisins og það verður fróðlegt að sjá hvort söfnunin hefur áhrif á stefnumótun varðandi framtíð flugvallarins.
Mest lesið Þjóðverjar yfirgefa Grænland Erlent Vilja beita „ofurvopni“ ESB gegn Bandaríkjunum Erlent Gríðarleg vonbrigði og mikið áhyggjuefni Erlent Setur „stærsta samning í sögunni“ í uppnám Erlent Sambandið aldrei verra: Ísland gæti bæst á listann Innlent Ræddi við Trump: „Hlakka til að sjá hann“ Erlent Karólína Helga skákaði sitjandi oddvita í Hafnarfirði Innlent VG og Sanna sameina krafta sína Innlent Hundruð hermanna í viðbragðsstöðu vegna Minnesota Erlent Stjórnvöld „í blindflugi“ í menntamálum í rúman áratug Innlent Fleiri fréttir Minnir á hvernig Hitler komst til valda VG og Sanna sameina krafta sína Sala á grænlenskum á Íslandi nær tvöfaldast Ekkert athugavert við fundinn og stjórnin starfshæf Stjórnvöld „í blindflugi“ í menntamálum í rúman áratug Haldið upp á 80 ára afmæli Hveragerðis allt afmælisárið Sambandið aldrei verra: Ísland gæti bæst á listann Dæmi um að nemendur hafi aldrei mætt í leikfimi Grænlandstollar vonbrigði og verðbólga spillir kjarasamningum Stöðugleikasamningarnir gætu sprungið strax í haust Heimsmálin, Grænland, menntun og fjölmiðlun á Sprengisandi Karólína Helga skákaði sitjandi oddvita í Hafnarfirði Ísland standi með Grænlandi og Danmörku Vonar að skólarnir verði frjálsir frá símum í haust Álagning aldrei hærri: Eldsneytisverð hefði átt að lækka enn frekar Líkir kærunni við „faglega aftöku“ „Vegferð ákæruvaldsins til skammar“ Menntamálaráðherra tekur yfir hjúkrunarheimilin Fjögur handtekin á Akureyri grunuð um innbrot Viðvarandi óvissuástand bitni á langtímaáætlunum fyrirtækja Einn endaði á hliðinni og þrjú klemmdust á milli Var í símanum við neyðarlínuna þegar ekið var aftan á hann Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna „Hef hvergi hallað réttu máli“ Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Fá þau að vera aftur á lista með Hildi? Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut og tveir fluttir á slysadeild Eigum eftir að sjá hvort Guðbrandur bæti upp fyrir hegðun sína Umfangsmikil lögregluaðgerð við Glerárgötu á Akureyri Öryrkjar eru með hærri laun en eldri borgarar Sjá meira