IKEA vísitalan lækkar um 9,5% Hrund Þórsdóttir skrifar 29. ágúst 2013 18:45
Spenna ríkir á mörgum heimilum þegar hinn árlegi IKEA bæklingur er væntanlegur en til stendur að senda hann á öll heimili landsins nú fyrir helgina. Undanfarin ár hefur fréttastofa Stöðvar 2 birt IKEA vísitöluna á þessum tíma, þar sem vörulistinn markar upphaf nýs rekstrarárs hjá IKEA, nýtt verð tekur gildi og fyrirtækið skuldbindur sig, ólíkt flestum fyrirtækjum, til að halda verðinu óbreyttu í eitt ár.Í ár hafa forsvarsmenn fyrirtækisins lýst því yfir að vöruverð standi í stað að meðaltali á milli ára en að um tólfhundruð vörur hafi lækkað í verði. Ástæðan er í einhverjum tilfellum betra innkaupsverð vegna lækkunar á heimsmarkaðsverði. Þá styrktist krónan nokkuð fyrr á þessu ári og Seðlabankinn lýsti því yfir að hann myndi grípa inn í til að tryggja nokkuð stöðugt gengi. Lítum á dæmi um nokkrar vinsælar vörur: HEMNES bókaskápurinn fer úr 64.950 í 59.950 krónur og hefur því lækkað um tæp 8%. MALM skrifborð lækkar úr 27.950 í 24.950 krónur, eða um tæp 11%. Arild þriggja sæta leðursófinn er á sama verði og í fyrra, á 219.900 krónur. Verð á IKEA Ps skápnum helst einnig óbreytt, 16.950 krónur og sama gildir um hina geysivinsælu Billy bókahillu sem kostar ennþá 8.950 krónur. Á meðan gengisvísitala krónunnar hefur hækkað um 0,4% undanfarið ár, hefur verð á húsgagnakörfu fréttastofu því lækkað um 9,5%. Þó ber að hafa í huga að þar sem vöruverð stendur í stað að meðaltali á milli ára, hefur verð á einhverjum vörum að sjálfsögðu hækkað.
Mest lesið Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Innlent Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Innlent Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Innlent Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Innlent Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Erlent Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Innlent Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Erlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Innlent Fleiri fréttir Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Sjá meira