Innlent

Álag á starfsfólki Rauða krossins vegna áfallahjálpar

Boði Logason skrifar
Í síðustu viku veitti Rauði krossinn áfallahjálp í fjórum alvarlegum slysum. Sálfræðingur hjá Rauða krossinum segir að flestir, sem lenda eða verða vitni, að slysi eru fljótir að ná sér en þó sé það mismunandi.

Á sunnudaginn varð alvarlegt bílslys á Suðurlandsvegi, þar sem tvær ungar stúlkur létust. Daginn eftir hrapaði flugvél á Akureyri, með þeim afleiðingum að tveir fórust. Á föstudaginn björguðust svo níu Þjóðverjar úr sökkvandi skútu suðvestur af landinu og í gær varð alvarlegt umferðarslys á Suðurlandsvegi þar sem ökumaður fólksbíls lést.

Jóhann Thoroddsen, sálfræðingur hjá Rauða krossinum, segir að mikið álag hafi verið á starfsfólki Rauða krossins síðustu viku.

„Þetta hefur verið mjög óvenjulegt og mjög alvarleg slys gerast trekk í trekk. Þetta eru fjögur mjög stór og alvarleg slys sem rauði krossinn hefur komið að.“

Jóhann segir að þegar fólk verði fyrir slysi, eða verður vitni að slysi, verði það fyrir áfalli. Oft sé erfitt að hugsa skýrt og algengt sé að fyllast af ótta og hræðslu. Mikilvægt sé að fólk finni fyrir öryggi.

„Síðan veitum við fólki ákveðnar upplýsingar um hvað hefur gerst, hvað muni gerast og af hverju því líði eins og það líður.“

Þegar áfallahjálp er veitt er reynt að tala við alla sem verða vitni, eða lenda í hamförum. Flestir ná sér fljótt eftir áfall en þó sé fólk á mismunandi stað í lífinu sem veldur því að áfallið sé meira.

„Til dæmis eins og ég hitti mann sem var að bjarga úr bíl eftir bílslys og þegar hann kom að lítilli stúlku sem var föst þar inni. Þá var hún með nákvæmlega eins litað hár og dóttir mannsins og á sama aldri, og það var það sem sat í honum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×