Húsnæðiseigendur mala gull á Höfn 12. ágúst 2013 23:00 Sjávarútvegurinn skapar stöðugleikann sem síðan hefur verið hlaðið utan á svo að nú eru Hornfirðingar ekki á flæðiskeri staddir nema marga vantar húsnæði. Anton
Á milli tuttugu og þrjátíu manns eru á biðlista eftir leiguhúsnæði á Höfn í Hornafirði, að sögn Hjalta Þórs Vignissonar bæjarstjóra. Sex íbúðir hafa verið byggðar á síðustu misserum en það sér varla högg á vatni. Þegar háannatíminn í ferðamennskunni stendur yfir verður húsnæðisþörfin enn brýnni, en nokkuð er um það að einbýlishús og íbúðir séu nýttar til gistingar eða leigu fyrir ferðamenn. „Hér er náttúrulega allt fullt af ferðamönnum þannig að maður skilur það að íbúarnir vilji nýta sér þennan markað,“ segir Hjalti Þór. Hann, eins og fleiri Hornfirðingar sem Fréttablaðið ræddi við, segist vita til þess að nokkrir sem hafa leigt yfir veturinn hafi þurft að finna sér annan stað yfir sumartímann þar sem húsnæðið sem þeir leigðu sé nýtt í ferðamennskuna. Þar að auki er leiguverð nokkuð hátt á Hornafirði miðað við annars staðar á landsbyggðinni. Magnhildur Gísladóttir, verkefnastjóri um málefni nýrra íbúa hjá bæjarfélaginu, segist þekkja þess dæmi að leiga fyrir íbúð og einbýlishús geti verið um 150 þúsund krónur. Hjalti Þór telur að leiguverð sé á bilinu 1.300 til 1.500 á fermetrann. Það er álíka og leiguverð á Akureyri, samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands. Þar kemur einnig fram að meðalleiguverð á Austurlandi sé á bilinu 847 til 1.173 krónur, svo Hornfirðingar standa vel í hreppametingnum. „Þetta gerir mörgum erlendum íbúum erfitt fyrir og ég veit að margir þeirra eru í mun minna húsnæði en þeir ættu að vera svo hægt væri að búa með góðu móti,“ Magnhildur. Aðspurð hvað valdi eftirsókninni segja þau Hjalti og Magnhildur að sjávarútvegurinn sé stöðugur á svæðinu en svo hafi Hornfirðingar hugað að því að ýta undir fjölbreytt atvinnulíf á staðnum. „Meðan öll eggin voru sett í sömu körfuna í góðærinu vorum við að leita og hlúa að eggjum víða og það er að unga vel úr þeim núna,“ segir Magnhildur.
Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fleiri fréttir Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Sjá meira