Enn og aftur milljón tonna makrílmæling Svavar Hávarðsson skrifar 13. ágúst 2013 23:00 Í Neskaupstað er sífellt rennerí af skipum sem koma til að landa makríl eða lesta afurðir til útflutnings. Mynd/Kristín Svanhvít Hávarðsdóttir
Makríll innan íslenskrar lögsögu mælist vel yfir milljón tonn þriðja árið í röð. Þrátt fyrir að nokkru minna mælist af makríl í sumar en á sama tíma í fyrra er ekki um neina grundvallarbreytingu að ræða, að sögn fiskifræðings. Mælingin styrkir samningsstöðu Íslands, er mat aðalsamningamanns Íslands í makríldeilunni við Evrópusambandið og Noreg. Þetta er meðal niðurstaðna 29 daga rannsóknarleiðangurs Hafrannsóknastofnunar á útbreiðslu og magni makríls í íslenskri og grænlenskri lögsögu. Þetta er fjórða árið sem sameiginleg rannsókn Íslendinga, Norðmanna, Færeyinga og Grænlendinga á magni og umhverfisaðstæðum er framkvæmd. Sveinn Sveinbjörnsson, fiskifræðingur hjá Hafrannsóknastofnun, var leiðangursstjóri á rannsóknaskipinu Árna Friðrikssyni. „Það er ekki um neina grundvallarbreytingu að ræða á makrílgengd við Ísland, þó að nokkru minna mælist núna en í fyrra. Þetta hefur ekki verið reiknað upp á tonn en ljóst að meira er af makríl en árin 2010 og 2011. Því er vel yfir milljón tonn innan lögsögunnar,“ segir Sveinn. Árið 2011 mældust ríflega milljón tonn innan íslenskrar landhelgi, en í fyrra 1,5 milljón tonn. Sveinn segir greinilegt að yfirborðssjórinn er mun kaldari í sumar en fyrri ár. Það skýri að hluta aðra dreifingu makrílsins núna en var í fyrra. Sveinn bætir við að markvert sé að töluvert magn af makríl mælist innan grænlensku lögsögunnar og það þurfi að rannsaka mun betur en nú var gert. Sigurgeir Þorgeirsson, aðalsamningamaður Íslands í makríldeilunni í atvinnu- og nýsköpunarráðuneytinu, telur engan vafa leika á því að niðurstöður rannsóknarinnar núna styrki samningsstöðu Íslands enn frekar – og að hún styrkist í raun ár frá ári með mælingum upp á rúmlega milljón tonn. „Þetta er mjög góð mæling og ekki hægt að segja annað en að hún staðfesti þessar gríðarlega miklu makrílgöngur í okkar lögsögu.“ Næsti samningafundur í makríldeilunni verður í Reykjavík 7.-8. september. Það er fyrsti fundur samninganefnda strandríkjanna frá því í október í fyrra. Stóri makríllinn lætur ekki sjá sigGuðmundur Huginn Guðmundsson, skipstjóri og útgerðarmaður á Huginn VE 55Mynd/Óskar Friðriksson„Það er miklu þyngra að ná makrílnum núna en í fyrrasumar og það er minna af stórum makríl,“ segir Guðmundur Huginn Guðmundsson, skipstjóri og útgerðarmaður á Hugin VE 55 frá Vestmannaeyjum. Hann staðfestir niðurstöður rannsókna um að makríllinn sé dreifðari en hann var á undangengnum vertíðum. Hins vegar séu fregnir um mikinn meðafla, og þá af norsk-íslenskri síld, orðum auknar. Vandalaust sé að haga veiðum þannig að hreinn makríll fáist. Guðmundur hefur aðallega verið að makrílveiðum sunnan- og vestanlands. Af 8.800 tonna kvóta skipsins eru ríflega þrjú þúsund tonn enn óveidd. „Það gæti orðið erfitt að ná restinni þó það sé ómögulegt um það að segja hvort menn brenni inni með einhvern kvóta. Það er ágætis veiði núna,“ segir Guðmundur, sem bætir við að vertíðin hafi hafist nokkru seinna en fyrri ár og veður hafi ekki verið að hjálpa mönnum neitt.
Mest lesið Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Erlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Innlent Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Innlent Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Innlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Innlent Haraldur konungur lagður inn á spítala Erlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Fleiri fréttir Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Hljóðupptökur, ný vínbúð og færri sturtuðu niður yfir almyrkva Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Allt gert til að stöðva birtinguna Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Hjón skildu fimm ára dreng eftir í bíl: Málið á borði breskra yfirvalda Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Loka brúnni yfir Borgarfjörð í tvær nætur Um sextán þúsund greitt atkvæði utan kjörfundar Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Ákafir þátttakendur beggja fylkinga rugli fólk viljandi í ríminu E. coli fannst í neysluvatni á Borgarfirði eystra Popúlismi í aðdraganda þjóðaratkvæðis og hvalkjöt í töfluformi Tekur við viðskiptadeild Bifrastar eftir átakavetur Engir gallar á kosningu til heimastjórnar Seyðisfjarðar Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Handtekinn vegna kannabisræktunar í Króksfjarðarnesi Bogi Ísak Nilsson er látinn Fyrsta skrefið í að kenna Íslendingum að nota fánann við fleiri tilefni Brotist inn í garnverslun í Árbæ Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu bætiefnis Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Sjá meira