Innlent

„Með ólíkindum að ekki hafi tekist að koma í veg fyrir þessa hegðun fólks“

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Jonah Hill-pappaspjaldið mun þurfa að finna sér nýtt heimili.
Jonah Hill-pappaspjaldið mun þurfa að finna sér nýtt heimili.
Myndbandaleigan VIDEOheimar í Fákafeni hættir störfum þann 31. ágúst, en hún hefur verið starfrækt í nærri 25 ár.

„Tíminn hefur verið skemmtilegur, mikil gróska og uppgangur í upphafi en undanfarinn áratug hefur verið samdráttur sem virðist ekki sjást fyrir endann á. Því er ekkert annað í stöðunni en að loka,“ segir í tilkynningu frá leigunni.

Árdís Þórðardóttir, eigandi leigunnar, segir í samtali við Vísi að á einhverjum tímapunkti sé betra að hætta en að breytast í risaeðlu. Um ástæður samdráttarins segir hún að margt spili inn í.

„Smekkur fólks breytist samhliða tækninni. Niðurhalið skiptir greinilega miklu máli og diskurinn virðist vera á leiðinni út,“ segir Árdís, en hún telur að þróunin endi með því að kvikmyndir á diskum verði eingöngu fyrir safnara.

Árdís telur að höfundaréttur sé fótum troðinn í kjölfar aukinnar tækni.

„Ég heyri fólk tala um þetta fyrir framan mig eins og þetta sé allt í lagi. Það er einhver ný mynd í bíó og það er komið með hana á flakkara. Þetta þýðir að höfundurinn fær ekki þær tekjur sem honum ber. Þetta er það sama sem Baltasar var að segja um daginn og það sem SMÁÍS eru búnir að vera að segja. Það ólíkindum að ekki hafi tekist að koma í veg fyrir þessa hegðun fólks.“

Allt á að seljast

VIDEOheimar kveðja með rýmingarsölu sem hefst á laugardaginn. Þar verður hægt að kaupa kvikmyndir á DVD og BluRay, tölvuleiki, VHS-myndir og fleira. Allt á að seljast, að undanskildu Disney-safni leigunnar, sem verður gefið Barnaspítala Hringsins. Bangsadeild SÁÁ verður þar að auki gefinn vænn skammtur unglingamynda. Árdís gerir svo ráð fyrir því að loka endanlega þann 31. ágúst.

En hvað tekur við að því loknu?

„Við verðum bara finna okkur önnur viðfangsefni, enda alltaf með höfuðið fullt af hugmyndum,“ segir Árdís og fer aftur að afgreiða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×