"Þegar þessi helgi er að renna upp verðum við oft dálítið kvíðin" Hrund Þórsdóttir skrifar 2. ágúst 2013 18:45 Þóra Magnea Magnúsdóttir, verkefnastjóri fræðslumála hjá Samgöngustofu, minnir ökumenn á að keyra ekki undir áhrifum.
Við ræddum í dag við Þóru Magneu Magnúsdóttur, verkefnastjóra fræðslumála hjá Samgöngustofu. „Þegar þessi helgi er að renna upp verðum við oft dálítið kvíðin, vitum ekki hvernig hún fer fram en erum að reyna að fá fólk í lið með okkur, að það velti sjálft fyrir sér hvað það geti gert til að allir komi heilir heim,“ segir hún. Þóra segir óhöpp og slys tengd ölvunarakstri algeng um verslunarmannahelgar. Um 20% banaslysa í umferðinni verða af völdum ökumanna undir áhrifum. Tryggingafélög eiga endurkröfurétt á hendur þeim sem valda slysum undir áhrifum og magn áfengis í blóði þarf ekki að ná refsimörkum til að hægt sé að gera slíka kröfu á hendur ökumanni. Hún segir aldrei borga sig að taka áhættuna. „Það þarf að líða dágóður tími, allt upp í 18 tímar, frá því að áfengis er neytt þar til viðkomandi er orðinn fær um að stjórna bifreiðinni,“ segir Þóra. Hún segir mikilvægt að keyra á löglegum hraða, raða farangri vel í bíla, nota bílbelti og annan öryggisbúnað og gefa sér nægan tíma því umferðin verði örugglega hægari en venjulega. „Það er spurning um að vera bara slök, njóta lífsins og helgarinnar og koma heil heim.“ Í meðfylgjandi frétt er að finna spjall við nokkra hressa borgarbúa sem sögðu okkur frá helgarplönunum.
Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent Fleiri fréttir Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Sjá meira