Fjölskyldufjör á Einni með öllu Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 3. ágúst 2013 11:05 Mynd/Benedikt H. Sigurgeirsson
Fjölskylduhátíðin Ein með öllu á Akureyri sem hófst formlega á fimmtudag hefur farið vel af stað. Pétur Guðjónsson, talsmaður hátíðarinnar, segir gott líf hafa verið í bænum í gær. „Gærkvöldið var mjög skemmtilegt. Það var fjölskyldustemning og ekki mikil ölvun.“ Hann segir fólki almennt finnast andrúmsloftið gott á hátíðinni. „Ég gæti ekki beðið um neitt betra. Hér er líf og fjör en samt þægilegt, spennulaust og ekkert neikvætt.“ Þetta fer saman við upplýsingar frá lögreglu sem að segir nóttina hafa verið rólega. Pétur segist ekki hafa neinar tölur yfir hversu margir gestir séu á hátíðinni. „Þetta er óútreiknanleg hátíð þar sem að margir brottfluttir koma aftur og ættingjar þeirra sem búa hér. Því er ekki hægt að mæla fjöldann á tjaldstæðum.“ Dagskrá gærdagsins var þétt og skemmtu ungir sem aldnir sér konunglega eins og sjá má á myndum sem ljósmyndari 365 náði af kátum gestum í gær. Kirkjutröppuhlaup fór fram síðdegis, Leikhópurinn Lotta skemmti með nýja söngleik sínum Gilitrutt, boðið var upp á skautadiskó í Skautahöllinni og Óskalagatónleikarnir sem föst hefð er fyrir að halda um Verzlunarmannahelgi voru haldnir í Akureyrarkirkju. Um kvöldið voru tónleikar í Skátagilinu þar sem fram komu meðal annars hljómsveitirnar Úlfur úlfur og Sísí Ey. Dagskrá lauk klukkan ellefu í gærkvöld. Það er þó eitt sem hefði getað farið betur að mati Péturs. „Veðrið mætti vera betra. Þú heyrir þetta ekki oft frá Akureyringi,“ segir hann og hlær. „Það rigndi í nótt en þó ekkert í gær.“
Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Innlent Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Innlent Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Innlent „Já, ég er dálítið reiður“ Innlent Bein útsending: Inga ávarpar kennara sem ráða ráðum sínum Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Sjálfkjörið á Vopnafirði Innlent Fleiri fréttir Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Matarstefnan bara „orð út í loftið“ Töldu framboðinu ekki til framdráttar að mæta í þáttinn Verð á stökum miða í sund hækkar en árskortið lækkar Árni vill stöðuna þrátt fyrir auglýsingu Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Bein útsending: Inga ávarpar kennara sem ráða ráðum sínum Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Sjálfkjörið á Vopnafirði Logi tekur undir mótmæli gegn þátttöku Rússa á Feneyjatvíæringnum Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Sjá meira