Innlent

Interpol lýsir eftir Friðriki

Alþjóðalögreglan Interpol hefur nú lýst eftir Friðriki Kristjánssyni, sem ekki hefur spurst til síðan í byrjun apríl síðastliðins. Á síðunni segir að síðast hafi sést til Friðriks í Paragvæ.

Lögreglan hér á landi lýsti eftir Friðriki í byrjun júlí.

Friðrik, sem er 30 ára, var þá á ferðalagi um Suður-Ameríku. Lögreglan óskaði eftir aðstoð Interpol í apríl til þess að finna Friðrik og var þá talið að hann væri staddur í Paragvæ eða Brasilíu. Eftirgrennslan bar þó ekki árangur.

Margar sögursagnir hafa verið uppi um afdrif Friðriks, en enginn fótur virðist vera fyrir þeim. Lögreglan verst frétta og segist aðeins lýsa eftir Friðriki og er málið ekki skoðað sem sakamál.

Fréttastofa Stöðvar 2 greindi hinsvegar frá því í apríl að lögreglu hefðu borist upplýsingar um að Friðriki hefði verið ráðinn bani erlendis, eftirgrennslan lögreglu hafi þó ekki leitt neitt slíkt í ljós.

Í lýsingu Interpol segir að Friðrik sé 175 sentímetrar á hæð, bláeygður, skolhærður og tali íslensku, ensku og spænsku.

Þeir sem búa yfir upplýsingum um afdrif Friðriks geta sent póst á lögregluna á netfangið abending@lrh.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×