Neitar að hafa sóst eftir rauðu spjaldi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 8. ágúst 2013 10:34 Jordan Halsman í bikarleik gegn Gróttu fyrr í sumar. Mynd/Daníel
Jordan Halsman, vinstri bakvörður Framara, fékk að líta sitt annað gula spjald og þar með rautt undir lok leiks Fram og Vals í 14. umferð Pepsi-deild karla í gærkvöldi. Halsman fékk áminningu á tólftu mínútu leiksins en hún var hans fjórða á tímabilinu. Hann hefði því verið á leið í leikbann sem tekið hefði gildi á þriðjudaginn þegar aganefnd KSÍ kemur saman. Fram mætir Stjörnunni í bikarúrslitum annan laugardag og hefði Skotinn því verið í banni í úrslitaleiknum. Fram mætir ÍA í deildinni nú á sunnudag og undir lokin leit hreinilega út fyrir að Halsman vildi láta reka sig af velli. Fái leikmenn rautt spjald tekur leikbannið nefnilega strax gildi. Ekki þarf að bíða eftir úrskurði aganefndar næsta þriðjudag. „Ég var mjög pirraður í leiknum. Ég fékk áminningu snemma og það hefði verið hægt að reka mig útaf eftir hálftíma," segir Skotinn í samtali við Vísi. Vilhjálmur Alvar Þórarinsson, dómari leiksins, rak Halsman af velli með sitt annað gula spjald í viðbótartíma. Skotinn þvertekur fyrir að hafa reynt að ná sér í gult spjald. Pirringurinn hafi einfaldlega verið mikill. „Ég hefði misst af einum leik með Fram hvort sem það var gegn ÍA eða bikarúrslitunum," segir Halsman þegar blaðamaður ber aftur undir hann hvort ekki hafi verið freistandi að ná frekar bikarúrslitaleiknum. Halsman segist ekki hafa verið rekinn af velli í langan tíma þangað til rauða spjaldið fór á loft í gær. Hann hafi verið pirraður og Arnar Sveinn Geirsson fengið að kenna á því undir lokin. „Ég bað hann afsökunar," segir Halsman sem er ósáttur við gengi Framara í deildinni. Hann vill ekki meina að gott gengi í bikarnum hafi haft neikvæð áhrif á formið í deildinni. Framarar verði að passa sig ætli þeir ekki að sogast niður í botnbaráttuna. Halsman verður því í leikbanni gegn ÍA í deildinni á sunnudaginn. Hann verður hins vegar klár í slaginn annan laugardag þegar Fram getur bundið enda á 23 ára bikarþurrð í Safamýri þegar liðið mætir Stjörnunni í bikarúrslitum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Enski boltinn 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Enski boltinn Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Handbolti Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn Fleiri fréttir Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Sjá meira