Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Fram - KR 2-1 | Myndasyrpa úr Laugardal Guðmundur Marinó Ingvarsson á Laugardalsvelli skrifar 14. júlí 2013 00:01 Alan Lowing úr Fram og Guðmundur Reynir Gunnarsson KR-ingur í baráttunni í Laugardalnum í kvöld. Myndir/Daníel
Fram varð í kvöld fyrsta liðið til að sigra KR í sumar. Fram vann viðureign liðanna 2-1 á Laugardalsvelli. Er þetta fyrsti sigur Fram á KR á heimavelli í fjögur ár. Fyrri hálfleikur var opinn og skemmtilegur þar sem bæði lið fengu fjölda færa en Fram skoraði eina mark fyrri hálfleiks eftir frábæra skyndisókn þar sem Almarr Ormarsson lék upp hægri kantinn og fann Hólmbert Aron Friðjónsson sem skoraði með góðu skoti. Jafnræði var með liðunum framan af hálfleiknum en eftir að Fram skoraði á 26. mínútu var liðið mun sterkari aðilinn í leiknum og hefði hæglega getað farið með enn betri stöðu en 1-0 í hálfleik. Fram missti Ólaf Örn Bjarnason af velli í hálfleik vegna meiðsla og varð liðið varnarsinnaðara við það. KR færði sig framar og sótti nánast látlaust allan seinni hálfleikinn. Það skilaði árangri þegar Haukur Heiðar Hauksson jafnaði metin á 65. mínútu en Kristinn Ingi Halldórsson tryggði Fram sigurinn með marki eftir skyndisókn tíu mínútum síðar. Sam Hewson sendi langa sendingu inn fyrir vörn KR þar sem Kristinn Ingi stakk Guðmund Reyni Gunnarsson af og potaði boltanum framhjá hikandi Hannesi Þór Halldórssyni í marki KR. KR náði ekki að skapa sér færi eftir að Fram komst yfir á ný í og virkaði aldrei líklegt til að jafna leikinn þrátt fyrir að vera mikið með boltann. Almarr: Vorum eins og klettar„Þetta var baráttu sigur út í eitt. Við vorum hvorki betra né verra liðið á vellinum þó þeir hafi sótt meira,“ sagði Almarr Ormarsson sem lagði upp fyrra mark Fram í kvöld. „Þeir dældu boltanum fram og vonuðust að einhver kæmist í það. Við vorum eins og klettar og sérstaklega eftir við komumst í 2-1. Við ætluðum að halda því og gerðum það. „Við höfum verið í vandræðum með að nýta færin. Við erum að skapa þau en við skorum tvö í kvöld og sem betur fer er það nóg en jú við hefðum getað skoraði fleiri mörk. „Auðvitað er maður smeykur við að KR refsi þegar maður nýtir ekki færin, þeir eru góðir í því og vorum nokkrum sinnum nálægt því en við hentum okkur fyrir allt og börðumst eins og ljón. Ömmi (Ögmundur) varði líka vel,“ sagði Almarr sem eins og fyrr segir lagði upp fyrra mark Fram í leiknum. „Stundum er maður heppinn og hittir á rétta ákvörðun. Ég sá Lennon hlaupa og hugsaði um að gefa á hann. Svo öskraði Hólmbert og mér fannst hann vera í betra færi til að gefa á. Við höfum talað um horfa frekar á seinna hlaupið. Það er oft frírra og Berti nýtir svona færi vel. Það var auðveldari sending á hann en Lennon,“ sagði Almarr. Rúnar: Tókum leikinn yfir í seinni„Það er leiðinlegt að tapa fótboltaleikjum. Það var orðið langt síðan en það kemur alltaf að þessu. Maður er sár og svekktur með úrslitin þó fyrri hálfleikur hafi ekki verið neitt sérstakur hjá okkur,“ sagði Rúnar Kristinsson þjálfari KR í leikslok. „Fram stjórnaði ferðinni síðustu 15 mínútur fyrri hálfleiks og sköpuðu sér hættuleg færi og voru verðskuldað yfir í hálfleik. „Við tökum leikinn alveg yfir í seinni hálfleik og jöfnum eins og við ætlum okkur að gera en síðan urðum við full ákafir í að skora sigurmarkið og fengum fyrir vikið eitt í andlitið,“ sagði Rúnar en bæði mörk Fram komu eftir skyndisóknir. „Við vitum að þegar við spilum framarlega á vellinum að við fáum okkur skyndisóknir. Fram er með eldfljóta framherja og einn stóran með þeim. „Álag vegna Evrópukeppni hafði ekki áhrif á okkur í kvöld. Við þurfum að reyna að sjá til þess að leikmenn séu í toppstandi á milli leikja og nái að hvíla sig. Við þurfum líka að ná að stilla upp réttu liði og sjá hvort það heppnist, það gerir það ekki alltaf en ef maður horfir á seinni hálfleikinn í dag þá held ég að munurinn sé að við hlupum aðeins meira en þeir og sköpuðum fleiri færi og keyrðum yfir þá. Það dugði ekki til því Framarar voru mjög skynsamir í sínum leik og vörðust vel og beyttu hættulegum skyndisóknum,“ sagði Rúnar að lokum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Cantona spreytir sig á íslenskunni Fótbolti Nokkrir tæpir í Grindavík sem „tala skít“ Körfubolti „Á Ítalíu væri Yamal að spila í Serie B“ Fótbolti Bernardo Silva yfirgefur City: „Allar góðar sögur enda“ Enski boltinn Goðsögn hleður Guðjón Val og Gummersbach lofi Handbolti Besta-spáin 2026: Stórar spurningar Íslenski boltinn Kraftaverkið í Barcelona: „Næst er ég undir öllu Haukaliðinu“ Handbolti Van Dijk segir að Liverpool hafi gefist upp gegn City Enski boltinn „Finnst Valur ekki vera þannig klúbbur“ Íslenski boltinn Mun aldrei jafna sig á tapinu gegn Íslandi á EM: „Var mér mjög erfitt“ Fótbolti Fleiri fréttir Leikmenn Hauka fastir í bænum og þjálfararnir á bekkinn „Þetta eru alltaf risastórir leikir“ „Finnst Valur ekki vera þannig klúbbur“ Besta-spáin 2026: Stórar spurningar Samvinna Emils og Birnis gerði gæfumuninn Reykjavíkurslagur KR og Vals færður inn í Egilshöll „Vonandi keppa þeir af alvöru um það að komast í topp þrjá“ Besta-spáin 2026: Skref fyrir skref Sérfræðingarnir svara: Hverjir valda mestum vonbrigðum í sumar? Markaveislan í bikarnum: Nýir menn stimpla sig rækilega inn „Menn hafa alltaf eitthvað að segja“ Kristófer með tvennu er Blikar flugu áfram í bikarnum Djuric skoraði er KA komst áfram í bikarnum Fram - Víkingur 2-4 | Svöruðu seinu jöfnunarmarki ógnarsnöggt Fjögurra marka svar FH-inga sem eru komnir áfram Þróttarar slógu Eyjamenn út úr bikarnum „Finnst vanta framherja“ Besta-spáin 2026: Vindar breytinga Ægir Jarl mættur til Fram Bikarævintýri Davíðs Smára halda áfram Afturelding áfram í sextán liða úrslit bikarsins Uppgjörið: Breiðablik - FH 3-1 | Breiðablik meistarar meistaranna „Ofboðslega stórir skór að fylla“ Besta-spáin 2026: Vilja segja upp áskriftinni Sérfræðingarnir svara: Telja að ungu KR-ingarnir slái í gegn Skoruðu í Reykjavík og unnu í Hafnarfirði Meistarakeppni kvenna í fótbolta aflýst vegna veðurs Flautað af í Árbæ vegna snjókomu Breiðablik - FH | Bikar í boði í meistarakeppninni „Ég er spenntur fyrir Þórsurum“ Sjá meira