Elías: Vanari því að hirða boltann í teignum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 16. júlí 2013 11:30
Elías Már Ómarsson, leikmaður Keflavíkur, stimplaði sig inn í Pepsi-deild karla með sannkölluðum þrumufleyg í 2-1 tapi liðsins gegn Breiðabliki um helgina. Eins og sést í meðfylgjandi myndbandi er mark Elíasar Más sérlega glæsilegt en það kom Keflvíkingum í 1-0 forystu í leiknum. Það dugði þó ekki til á endanum. „Ég er nú vanari því að hirða boltann í teignum og skora mörkin mín þannig,“ sagði Elías Már við Vísi í dag. „En það kemur fyrir að maður láti vaða af svona færi.“ Elías fékk mikið hrós hjá þáttastjórnendum Pepsi-markanna í gær og hann segir það hafa verið sérstaka upplifun. „Það var mjög gaman og skemmtilegt að sjá sjálfan sig spila fótbolta í sjónvarpinu,“ segir hann. Þetta var fyrsti leikur Elíasar Más í byrjunarliði Keflavíkur og hann er þakklátur fyrir það tækifæri. „Ég var búinn að koma nokkrum sinnum inn á sem varamaður en nú er stefnan auðvitað að halda sæti mínu í byrjunarliðinu,“ segir hann. Elías varð átján ára á þessu ári og er því enn í 2. flokki. Hann hefur þó fyrst og fremst æft með meistaraflokki Keflavíkur í sumar og vonas til að liðið fari að safna fleiri stigum á síðari hluta mótsins. „Sérstaklega á heimavelli, þar eigum við að fá fleiri stig,“ segir hann en Keflavík hefur aðeins fengið eitt stig á Nettóvellinum til þessa. Liðið mætir einmitt Íslandsmeisturum FH í Keflavík á laugardaginn.Mark Elíasar má sjá í meðfylgjandi myndbandi. Það kemur eftir 45 sekúndur.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Leikmenn Hauka fastir í bænum og þjálfararnir á bekkinn Íslenski boltinn KR - Valur 4-2 | Síst of stór sigur og KR áfram Íslenski boltinn Nokkrir tæpir í Grindavík sem „tala skít“ Körfubolti Cantona spreytir sig á íslenskunni Fótbolti „Á Ítalíu væri Yamal að spila í Serie B“ Fótbolti Sjö leikmenn flúðu eftir fyrsta landsleikinn í átta ár Fótbolti Valur - KA | Barist í undanúrslitum Handbolti „Finnst Valur ekki vera þannig klúbbur“ Íslenski boltinn Bernardo Silva yfirgefur City: „Allar góðar sögur enda“ Enski boltinn Varla spilað fótbolta í fjögur ár en skaut Gróttu áfram Íslenski boltinn Fleiri fréttir KR - Valur 4-2 | Síst of stór sigur og KR áfram Varla spilað fótbolta í fjögur ár en skaut Gróttu áfram Damir skaut Grindvíkinga áfram í vítakeppni Viktor í stuði á Skaganum og dramatík í Egilshöll Leikmenn Hauka fastir í bænum og þjálfararnir á bekkinn „Þetta eru alltaf risastórir leikir“ „Finnst Valur ekki vera þannig klúbbur“ Besta-spáin 2026: Stórar spurningar Samvinna Emils og Birnis gerði gæfumuninn Reykjavíkurslagur KR og Vals færður inn í Egilshöll „Vonandi keppa þeir af alvöru um það að komast í topp þrjá“ Besta-spáin 2026: Skref fyrir skref Sérfræðingarnir svara: Hverjir valda mestum vonbrigðum í sumar? Markaveislan í bikarnum: Nýir menn stimpla sig rækilega inn „Menn hafa alltaf eitthvað að segja“ Kristófer með tvennu er Blikar flugu áfram í bikarnum Djuric skoraði er KA komst áfram í bikarnum Fram - Víkingur 2-4 | Svöruðu seinu jöfnunarmarki ógnarsnöggt Fjögurra marka svar FH-inga sem eru komnir áfram Þróttarar slógu Eyjamenn út úr bikarnum „Finnst vanta framherja“ Besta-spáin 2026: Vindar breytinga Ægir Jarl mættur til Fram Bikarævintýri Davíðs Smára halda áfram Afturelding áfram í sextán liða úrslit bikarsins Uppgjörið: Breiðablik - FH 3-1 | Breiðablik meistarar meistaranna „Ofboðslega stórir skór að fylla“ Besta-spáin 2026: Vilja segja upp áskriftinni Sérfræðingarnir svara: Telja að ungu KR-ingarnir slái í gegn Skoruðu í Reykjavík og unnu í Hafnarfirði Sjá meira