Umfjöllun, viðtöl og myndir: Stjarnan - FH 3-1 | FH úr leik í bikarnum Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 20. júní 2013 13:31 Garðar fagnar einu marka sinna í kvöld. Mynd/valli
Stjarnan er komið í átta liða úrslit Borgunar bikars karla eftir 3-1 sigur á FH á heimavelli í kvöld þar sem Garðar Jóhannsson skoraði þrennu. Staðan í hálfleik var 2-1 fyrir Stjörnuna. FH byrjaði leikinn betur og komst yfir þegar Björn Daníel Sverrisson skallaði boltann í netið á 8. mínútu. Leikurinn var bráð fjörugur og opinn og óðu liðin í færum framan af leik. Stjarnan náði þó betri tökum á miðjunni upp úr miðjum fyrri hálfleik og komst yfir þegar Garðar Jóhannsson skoraði tvö mörk á fjórum mínútum eftir rúmlega hálftíma leik. Stjarnan var mikið betri aðilinn í seinni hálfleik. Liðið óð í færum á sama tíma og sóknarlína FH missti taktinn og skapaði sér lítið sem ekkert. Þegar rétt innan við 20 mínútur voru eftir af leiknum braut Guðmann Þórisson af sér innan vítateigs og óð í Þórodd Hjaltalín í kjölfarið og fékk réttilega að líta sitt annað gula spjald. Halldór Orri Björnsson sem fékk vítið vippaði boltanum kæruleysislega í slána en Halldór Orri fékk nokkur góð færi í leiknum til að skora auk þess að búa til fjölmörg færi fyrir félaga sína. Öll sóknarlína Stjörnunnar lék frábærlega í leiknum vel studd af sterkri miðjunni og var vörnin traust er leið á leikinn. Það var þó Garðar Jóhannsson sem stal senunni þegar hann fullkomnaði þrennuna á 92. mínútu eftir góða sendingu Halldórs Orra. Stjarnan er því síðasta liðið til að tryggja sér sæti í átta liða úrslitum en bikardraumur FH er úti enn eitt árið. Heimir: Ef ég næ ekki til hópsins hef ég ekki mikið að gera hér lengur„Við byrjuðum þennan leik mjög vel og það gekk flest upp sem við vorum að gera. Við komumst í 1-0 og það voru ákveðnar forsendur fyrir því að gera góða hluti en svo einhverra hluta vegna þá hættum við því eftir 20 og eitthvað mínútur og þeir komast inn í leikinn og komast yfir. Í seinni hálfleik vorum við ekki nógu góðir og þeir komast áfram,“ sagði Heimir Guðjónsson þjálfari FH allt annað en sáttur við leik sinna manna og tók hann það allt á sig. „Það sem bregst í dag er að þjálfarinn stillti upp vitlausu liði með vitlausa leikaðferð og var ekki nógu klókur og þess vegna tapaði FH liðið þessum leik. Ég tek þetta tap algjörlega á mig. „Það sem var sett upp fyrir leikinn virkaði ekki enda töpum við leiknum. Uppstillingin á liðnu var ekki rétt og þá verður maður sem þjálfari að spyrja sig einhverra spurninga sem þjálfari liðsins ef maður tapar og þegar FH tapar. Líka í ljósi þess að FH hefur yfirleitt verið mjög agað og vel skipulagt lið og agaleysið sem var til staðar í dag á ekki að sjást hjá FH. „Ég gerði mistök með því að stilla þessu svona upp og ef ég er ekki að ná til hópsins þá hef ég ekki mikið að gera hér lengur. Ef þjálfarinn gerir mistök þarf hann að taka á sig líka,“ sagði Heimir sem var allt annað en sáttur við agaleysið sem Guðmann Þórisson sýndi þegar hann fékk að líta rauða spjaldið í stöðunni 2-1. „Það er agaleysi og ég er ósáttur við það hvernig hann brást við,“ sagði Heimir sem segir næstu skref vera æfingu á morgun. „Það byrjar undirbúningur fyrir Fylkisleik á mánudaginn. Við förum ekkert lengra nema vera jákvæðir en það eru vonbrigði að vera dottnir út úr bikarnum enn eitt árið. Það er ekki nógu gott fyrir klúbb eins og FH,“ sagði Heimir. Logi: Höldum spennu í þessu fyrir áhorfendur„Ég er virkilega ánægður með frammistöðu liðsins eftir að við gerum mistök í aukaspyrnu gegn okkur. Það er einn sem spilar Björn Daníel sennilega réttstæðan en að komast inn í leikinn og ná að sigra svona sannfærandi er mjög ánægjulegt,“ sagði Logi Ólafsson þjálfari Stjörnunnar eftir leikinn í kvöld. „Við vorum ekki góðir á miðjunni um miðbik fyrri hálfleiks, þá réðu þeir lögum og lofum en hvernig við vinnum okkur inn í leikinn og hvað við sköpum okkur mörg marktækifæri og skorum jú aðeins þrjú mörk en ef ekki hefði verið fyrir Róbert í markinu þá hefðu þetta verið mun stærra. „Við erum sáttir svo lengi sem við vinnum og höldum spennu í þessu. Áhorfendur voru frábærir og við þurfum að gera eitthvað fyrir þá eins og þeir gera fyrir okkur. „Við höfum vitað allan tímann að það myndi opnast fyrir Garðar. Þetta er eins og með rithöfundinn, stundum eru ritstíflur og það er sama með markaskorara,“ sagði Logi um þrennuna sem Garðar Jóhannsson skoraði. „Ég held að það sé ekki góð nálgun á þessa keppni að óska sér einhvers. Það er ekki á vísan að róa í þessari keppni en það væri voðalega gaman að fá heimaleik,“ sagði Logi aðspurður hvort Grótta væri óska mótherji í næstu umferð. Garðar: Okkar besta í sumar„Það var kominn tími á eitt að minnsta kosti. Ég var búinn að segja að þegar liðið þyrfti á marki að halda þá myndi ég skora og það var svoleiðis í dag,“ sagði Garðar Jóhannsson markaskorari Stjörnunnar í dag. „Við vorum mjög góðir í dag og sköpuðum okkur helling af færum. Ég hefði getað skoraði tvö til þrjú í viðbót. Hinir líka. Við klikkum á víti og vorum miklu betri en þeir í dag. „Það fer ekkert um okkur þegar við klikkum úr vítinu því við vorum svo miklu betri. Þeir voru ekki að skapa neitt og við vorum alltaf að skapa einhverja hættu. „Þetta var mun öruggara en tölurnar gefa til kynna eða það fannst mér.“ „Við spiluðum fínan bolta og börðumst vel. Við létum boltann ganga ágætlega og þegar við förum að fá færin þá kemur sjálfstraust í liðið og þegar mörkin detta þá er það ekki verra. Þá erum við ill viðráðanlegir.“ „Við höfum ekki skapað okkur svona mörg færi í sumar og skorum þrjú mörk. Ég held að þetta hafi verið okkar besta í sumar,“ sagði Garðar sem vill umfram annað fá heimaleik í næstu umferð. „Ég væri til í að fá heimaleik því við erum búnir að byggja upp gott virki hérna. Við fáum reyndar þennan stuðning líka úti þannig að það skiptir svo sem ekki máli,“ sagði Garðar sem vísaði til þess frábæra stuðnings sem Stjarnan fékk í kvöld.Veigar Páll í dauðafæri.mynd/valliGarðari fagnað.mynd/valliFH-ingar fagna marki sínu í kvöld.mynd/valli
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Missti eins árs gamlan son sinn Handbolti Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Enski boltinn Ögrandi herferð Sweeney gagnrýnd: „Get ekki lýst því hvað ég er reið“ Sport Fámáll um orðrómana Íslenski boltinn „Sýnir hvað þau eru þakklát fyrir það sem ég gaf klúbbnum“ Fótbolti Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Handbolti Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin Enski boltinn „Þetta er bara svo ógeðslega dýrt“ Íslenski boltinn Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Enski boltinn Sjokk fyrir Róbert: „Heyrist hátt brak og maður varð hræddur“ Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu sturlað mark Tómasar, rassamark Vals og tvennur Galdurs og Benedikts Slagsmál á æfingu trufluðu ekki: „Litlar stimpingar með stórum afleiðingum“ Fámáll um orðrómana „Þetta er bara svo ógeðslega dýrt“ „Allir orðnir vinir í skóginum“ „Draumur að fá að spila á landsliðsvellinum“ Uppgjörið: Fylkir - HK 2-2 | Þrjú rauð spjöld og Fylkir í úrslit Þróttur tryggði sig í úrslitaleikinn „Mótið í rauninni búið“ „Við komum svo voða skrítnir inn í seinni hálfleikinn“ „Hræddur um að Höddi Magg hafi fengið hland fyrir hjartað“ „Fannst dómarinn missa svolítið tökin á leiknum” Uppgjörið: Stjarnan - ÍBV 2-0 | Warén jók á áhyggjur Eyjamanna Uppgjörið: KR - ÍA 5-1 | Markahæstir í sögunni Markaskorari Vals óviss um framtíð sína Uppgjörið: Valur - Þór Ak. 4-1 | Valsmenn ekki í vandræðum með Þórsara Uppgjörið: FH - KA 3-0 | FH-ingar fjórum stigum frá fallsvæðinu Þróttarar brutu bikarinn Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Grindavík/Njarðvík - Þróttur R. 1-2 | Þróttur bikarmeistari í fyrsta sinn Valshjartað slær enn hjá hetju KR KR upp í Bestu deildina MSK Zilina að kaupa Dag Orra frá Val Þetta verður spennuleikur í Laugardalnum KR með örlögin í sínum höndum og sæti í Bestu deildinni í boði Töpin sitja ekki í leikmönnunum fyrir úrslitaleikinn Alþjóðadómarinn verður yfirþjálfari Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Sjá meira