Handaþegi í klemmu í Lyon Jakob Bjarnar skrifar 25. júní 2013 14:05 Guðmundur Felix getur ekki fengið peninginn því hann er ekki með íbúð og íbúðina fær hann ekki af því að hann er ekki með peninginn.
Guðmundur Felix Grétarsson, er nú í sérkennilegri stöðu sem helst má kenna við Catch 22. Guðmundur Felix missti handleggina og slasaðist lífshættulega þegar hann fékk ellefu þúsund volta rafstraum í gegnum sig og féll átta metra niður á frosna jörð 12. janúar 1998, er nú staddur í Lyon í Frakklandi þar sem hann undirbýr sig fyrir aðgerð sem miðar að því að handleggir verði græddir á hann. En, hann fékk undanþágu frá gjaldeyrislögum til að kaupa evrur fyrir söfnunarfé en gallinn er sá að hann fær ekki að flytja féð úr landi. "Þetta skýrist vonandi á morgun þegar ég næ í einhverja lögfræðinga hjá Seðlabankanum," segir Guðmundur Felix. Hann er staddur tímabundið í leiguíbúð í Lyon meðan hann er að leita sér að húsnæði. "En til að vera með húsnæði hérna þarf ég að vera með franskan bankareikning og tryggingu. Og til að geta flutt peninga úr landi þarf ég að vera með lögheimili hérna. Þannig að ég get ekki fengið íbúðina af því að ég er ekki með peninginn og get ekki fengið peninginn af því að ég er ekki með íbúðina." Guðmundur segir að aðgerðin sé fyrirhuguð í september en það fer vitaskuld eftir því hvort þá verði til staðar gjafi sem hentar. Guðmundur Felix er að reyna að koma sér inn í tungumálið og menninguna. Aðgerðin mun kosta um 100 til 150 þúsund Evrur, sem eru 25 milljónir króna og endurhæfingin árlega mun kosta annað eins. Viðbrögð Seðlabankans við vandræðum Guðmundar eru þau að þó bankinn geti ekki tjáð sig um málefni einstakra aðila ... "þá virðist ljóst að einhver misskilningur er á ferðinni. Viðkomandi þyrfti að hafa samband við gjaldeyriseftirlit Seðlabankans til að leysa úr málinu."
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Fleiri fréttir Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Sjá meira