Í bráðri lífshættu vegna streptókokka í fæðingarvegi móðurinnar Hjörtur Hjartarson skrifar 3. júní 2013 19:35
Níu daga stúlka veiktist nýverið hastarlega og var í bráðri lífshættu vegna sýkingar sem rakin er til streptókokka í fæðingarvegi móðurinnar. Fjórðungur kvenna á barneignaaldri eru svokallaðir GBS berar og nýburar þeirra því í áhættuhópi. Fæstar vita þær þó af því né eru þær upplýstar um það af heilbrigðisyfirvöldum. Birna Harðardóttir er tuttugu og fjögurra ára og er dóttir hennar og Sigurðar Jóhannessonar, Matthilda, þeirra fyrsta barn. Matthilda er nú tveggja mánaða en aðeins nokkurra daga gömul veiktist hún alvarlega af völdum þess að móðir hennar bar streptókokka af tegund b í leggöngunum. „Hún byrjaði bara að fá smá hita og við fylgdumst með henni,“ sagði Birna í kvöldfréttum Stöðvar 2. „Við sem betur fer komumst snemma að þessu því við fórum mjög snemma niður á Barnadeild. Í kjölfarið var hún lögð inn með breiðvirk sýklalyf í æð og þar vorum við í tæpa viku." Í ljós kom að Matthilda var komin með sýkingu í bæði blóði og þvagi. „Af því að við komum það snemma, við gripum það fljótt inn að það fór ekki verr. En það skeikaði ekki nema degi, hún hefði jafnvel getað fengið heilahimnubólgu því það er oft það sem gerist í kjölfarið ef að foreldrar koma seint með börnin sín sem eru með þessa sýkingu." Undir orð Birnu tekur yfirlæknir á vökudeild Barnaspítalans sem segir að án þeirrar meðhöndlunar sem Matthilda fékk, hefði ekki þurft að spyrja að leikslokum. „Já, ef bakterían kemst inn í blóðið er barnið í bráðri lífshættu,“ segir Þórður Þorkelsson, yfirlæknir vökudeildar. „Erlendar rannsóknir hafa sýnt tiltölulega háa dánartíðni, 30-40 prósent en sem betur fer er dánartíðnin ekki nærri eins há hér á landi." 15 ár eru síðan barn lést síðast hér á landi vegna umræddrar sýkingar. Börn geta hinsvegar hlotið varanlega skaða, veikist þau alvarlega. Matthilda er heilsuhraust í dag og hefur náð sér að fullu. Flestar konur sem eru GBS berar eru með öllu einkennalausar og margar, líkt og í tilfelli Birnu, algjörlega óupplýstar um tilveru bakteríunnar. Hún telur að skima ætti allar barnshafandi konur á Íslandi og í kjölfarið veita þeim nauðsynlega ummönnum. „Einnig finnst mér það nauðsynlegt að þetta sé í umræðunni og að konur séu meðvitaðar um að þær gætu verið berar eða þær bara látnar vita að þær séu berar. Þá geta þær verið meira vakandi fyrir því þegar barnið er komið í heiminn," segir Birna. Matthilda litla náði sér að fullu en var á tímabili í bráðri lífshættu.mynd/skjáskot Skima ætti allar konur Þórður segir að skima ætti allar barnshafandi konur til að athuga hvort þær beri streptókokka af tegund b í sér. Það megi gera með einföldum hætti en um leið draga stórlega úr hættunni á að nýburar veikist alvarlega Um fjögur þúsund börn fæðast á Íslandi árlega. Mæður um eitt þúsund þeirra eru svokallaðir GBS berar. Um helmingur barna þeirra, nálægt 500 hundruð smitast af bakteríunni. Eitt til tvö prósent úr þeim hópi, 5-10 börn veikjast, sum hver mjög alvarlega. „Leið bakteríunnar inn í líkama barnsins er yfirleitt í gegnum lungun. Oftast fá börnin lungnabólgu, væga öndunarörðugleika og ef ekkert að gert kemst bakterían í blóðið og veldur blóðsýkingu sem er lífshættuleg og jafnvel heilahimnubólgu," segir Þórður. Víða um heim eru allar barnshafandi konur skimaðar fyrir bakteríunni á meðgöngu en ekki á Íslandi. Þó eru tekin sýni hjá þeim konum sem hafa einkenni í leggöngum eða einkenni um þvagfærasýkingu.Streptókokkar b eru ekki hættulegar barnshafandi konum og eru langflestar þeirra með öllu einkennalausar. Ef í ljós kemur við skimun að kona sé GBS beri fær hún pensilín í æð á meðan fæðingu stendur. Það dregur stórlega úr líkunum á því að barn hennar veikist. „Í Bandaríkjunum eru allar konur skimaðar og fá fyrirbyggjandi sýklalyf í fæðingunni ef þau eru með bakteríuna. Í mörgum nágrannalöndum okkar þá er það ekki gert, eins og til dæmis í Bretlandi og Svíþjóð. Það eru sem sagt mjög skiptar skoðanir hvort gera eigi að gera þetta eða ekki," segir Þórður En hver eru helstu rök þeirra sem leggjast gegn því? „Helstu rök þeirra eru þau að það sé verið að sjúkdómsvæða, eins og það er kallað, eðlilegar fæðingar því að þetta myndi þýða að ein kona af hverjum fjórum myndi fá sýklalyf í fæðingunni." Er það stórmál? "Því fylgir kostnaður og það er, ekki mikil, en viss hætta á ofnæmi og ónæmisviðbrögðum og slíku. En ég og mínir skoðanabræður, við teljum að þó að svo sé, sé þetta eitthvað sem eigi að gera."
Mest lesið Eldur kviknaði á Völlunum Innlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Vaxtahækkunin geti gert illt verra Innlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Innlent Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Innlent Fleiri fréttir Eldur kviknaði á Völlunum Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Sjá meira