Skrýtið að upplifa að barnið manns sé blint Jón Hákon Halldórsson skrifar 31. maí 2013 09:29 „
Það er skrýtið að upplifa það að barnið manns sé blint,“ segir Guðrún Jónsdóttir, móðir hinna fjögurra ára Leu Karen Friðbjörnsdóttur sem hefur verið alblind frá fimm mánaða aldri vegna æxlis í heila. Lea Karen fór í aðgerð og lyfjameðferð skömmu eftir að hún greindist. Guðrún segir að í lyfjameðferðinni hafi þau foreldrarnir gert sér grein fyrir því að sjónin myndi ekki koma til baka. Uppfrá því hafi verið lagt upp með að Lea Karen geti tekið sama þátt í samfélaginu og aðrir. Ekki síst af hálfu sérkennlustjórans í leikskólanum. „Hún með tengiliðum frá þjónustu þekkingamiðstöðinni hafa lagt upp með það að hún verði virkt bar á leikskólanum eins og öll önnur börn. Og hún tekur þátt í leik og starfi, komin í leik með öðrum börnum. Það hefur gengið alveg svakalega vel. Hún er bara ein af börnunum inni á deild," segir Guðrún, mamma hennar. Friðbjörn Oddsson faðir hennar segir að Lea Karen hafi meðal annars farið á skíði og hafi verið hjá skíðaþjálfara sem hafi reynslu af því að þjálfa fatlaða. „Í raun höfum við tekið þann pól í hæðina að hugsa þetta allt í lausnum en ekki eintómum takmörkunum fyrir dóttur okkar og ætlum að bjóða henni að takast á við allar áskoranir sem hana langar til að gera. Svo verður hún bara að ákveða hvað henni finnst skemmtilegt og hvað ekki," segir Friðbjörn pabbi hennar. Móðir hennar bætir við að það séu engar takmarkanir. Dóttir sín geti stundað allar íþróttir og allt sem hana langi til að gera.Góðgerðarfélagið Meðan fæturnir bera mig stendur fyrir 5 kílómetra víðavangshlaupi í Öskjuhlíð á laugardag klukkan 12. Hlaupið er til styrktar sjóðnum Blind börn á Íslandi og er Leu Karen. Allir eru hvattir til að mæta, jafnt vel þjálfaðir hlauparar og gönguglatt fólk. Tónlistarmaðurinn Jón Jónsson mætir á svæðið og vegleg útdrátta verðlaun verða veitt að hlaupinu loknu og geta allir skráðir þátttakendur átt von á vinningi. Þeir sem sjá sér ekki fært að mæta en vilja styðja við málefnið geta hringt í eitt af eftirfarandi símanúmerum, 901-5001 (1000 krónur), 901-5003 (3000 krónur) og 901-5005 (5000 krónur). Einnig er hægt að styrkja málefnið með því að millifæra á reikning félagsins, 546-14-402424, kt.650512-0140.Smelltu á hlekkinn efst í þessari frétt til að horfa á myndskeið um Leu Karen.
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Fleiri fréttir Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól Sjá meira