Vill útigangsmenn inni í Hörpu vegna skorts á gistiskýlum VG skrifar 29. maí 2013 11:01 "Ef annað kemur ekki í leitirnar er bent á Tjarnarsal Ráðhússins eða þann hluta Hörpunnar sem ekki er í notkun,“ segir í tillögu Þorleifs Gunnarssonar.
Þorleifur Gunnlaugsson, varaborgarfulltrúi Vinstri grænna, lagði til í Velferðarráði á mánudaginn að Tjarnasalur Ráðhússins eða hluti Hörpunnar sem ekki er í notkun, yrði nýttur undir þann mikla fjölda útigangsmanna sem hefur þurft að vísa frá neyðarskýlum borgarinnar. Í fundargerð velferðarráðs kemur fram að á fyrstu fjórum mánuðum ársins hafi komið upp 137 tilvik þar sem körlum var vísað frá neyðarskýlum borgarinnar. Þetta er gríðarleg aukning en á síðasta ári var 24 körlum vísað frá allt árið. „Við svo búið má ekki standa, því um er að ræða lágmarks mannréttindi,“ segir Þorleifur í tillögu sinni sem hann lagði fram í velferðarráði og benti á að samkvæmt áætlunum Velferðarsviðs sé ekki reiknað með nýju gistiskýli fyrr en eftir 6 – 9 mánuði. Þorleifur Gunnlaugsson, fulltrúi Vinstri grænna í Velferðarráði. Velferðarráðsfulltrúi Vinstri grænna lagði því til að þegar í stað yrði fundið bráðbirgðahúsnæði til að leysa vandann. „Ef annað kemur ekki í leitirnar er bent á Tjarnarsal Ráðhússins eða þann hluta Hörpunnar sem ekki er í notkun,“ segir í tillögunni. Tillagan var felld með fjórum atkvæðum gegn einu. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sátu hjá við atkvæðagreiðsluna. Fulltrúar Samfylkingarinnar og Besta flokksins lögðu hinsvegar fram bókun vegna málsins þar sem fram kemur að fyrir liggi samþykkt velferðarráðs um að fela sviðinu að leita að nýju húsnæði fyrir Gistiskýlið „og er sú vinna í fullum gangi. Hún miðar að því að finna húsnæði sem getur betur tekið við tímabundinni fjölgun líkt og núna ríkir,“ segir í bókun borgarfulltrúanna.
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Fleiri fréttir Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól Sjá meira