Innlent

Jón Gerald kallaði til lögreglu þegar ASÍ kom í hús

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Jón Gerald lenti í rifrildi við Verðlagseftirlit ASÍ.
Jón Gerald lenti í rifrildi við Verðlagseftirlit ASÍ.
Jón Gerald Sullenberger kallaði til lögreglu þegar Verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í versluninni í dag. ASÍ segir að þarna hafi fáheyrður atburður átt sér stað og að Kostur verði eina verslunin sem ekki muni taka þátt í verðkönnuninni.

Jón meinaði starfsfólki verðlagseftirlits ASÍ að gera verðkönnun í versluninni og krafðist þess að fulltrúar verðlagseftirlitsins yfirgæfu hana. Starfsfólk verðlagseftirlitsins benti Jóni Gerald á að verslunin væri opin almenningi og að lögum samkvæmt ættu verð að vera öllum aðgengileg. Starfsmenn verðlagseftirlitsins væru því í fullkomlega lögmætum tilgangi í versluninni og myndu halda verðkönnuninni áfram.

Lögreglumenn komu í hús en töldu ekkert tilefni til að aðhafast.
Jón Gerald sætti sig ekki við þetta og kallaði til lögreglu og óskaði eftir atbeina hennar við að vísa fulltrúum verðlagseftirlitsins á dyr. Lögreglan mætti á staðinn og eftir að hafa ráðfært sig við lögfræðing þá taldi lögreglan ekki ástæðu til að aðhafast neitt. Fulltrúar verðlagseftirlitsins ætluðu þá að halda áfram að sinna sínu starfi en nú brá svo við að Jón Gerald hrifsaði gögn af starfsmanni verðlagseftirlitsins, hindraði för starfsmanna verðlagseftirlitsins um verslunina og hafði í frammi ógnandi tilburði. Starfsmenn verðlagseftirlitsins sáu því þann kost vænstan að hverfa á braut.

ASÍ segir að Kostur sé eina verslunin sem ekki er með í verðkönnun ASÍ sem birt verður síðar í vikunni en bæði Nóatún og Víðir heimiluðu verðtöku eftir nokkurt hlé.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×