Hamburg fyrsta liðið inn í 8 liða úrslit Meistaradeildarinnar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. mars 2013 20:07 Mynd/Nordic Photos/Bongarts
Þýska liðið HSV Hamburg varð í kvöld fyrsta liðið til þess að tryggja sér sæti í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar í handbolta. HSV Hamburg komst áfram þrátt fyrir þriggja marka tap á heimavelli á móti slóvenska liðinu Celje Pivovarna Lasko, 28-31. HSV Hamburg var í frábærri stöðu fyrir leikinn eftir níu marka sigur, 29 – 38, í leiknum í Slóveníu sem fór fram fyrir fimm dögum. HSV Hamburg komst því áfram samanlagt 66-60. Anton Gylfi Pálsson og Hlynur Leifsson dæmdu þennan leik og hafa oft dæmt betur en komust engu að síður ágætlega frá þessu verkefni. Seinni hálfleikurinn var mun betri en sá fyrri. HSV Hamburg komst fimm mörkum yfir í fyrri hálfleik (12-7) en var bara með eins marks forskot í hálfleik, 13-12. Celje náði frumkvæðinu í seinni hálfleik en það var ekki nóg að ná fjögurra marka forskoti á lokamínútunum. Króatinn Domagoj Duvnjak skoraði lokamark leiksins og því munaði þremur mörkum á liðunum í lokin. Duvnjak var markahæstur hjá HSV með sjö mörk en þeir Michael Kraus og Blazenko Lacković skoruðu báðir 4 mörk. Borut Mackovsek, 21 árs slóvensk stórskytta, skoraði 13 mörk í fyrri leiknum en lét sér nægja að skora "bara" 7 mörk í kvöld. Hann var því með 20 mörk í leikjunum tveimur en það dugði þó skammt.
Mest lesið Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Fótbolti Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Handbolti Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Fótbolti Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Fótbolti „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Fótbolti Gylfi klár og mun spila stórt hlutverk í kvöld Fótbolti Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Enski boltinn Fleiri fréttir „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Sjá meira