Óvænt tap Flensburg Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 27. mars 2013 22:11 Nordic Photos / Getty Images
Ólafur Gústafsson og félagar hans í Flensburg gáfu eftir í baráttunni um þriðja sæti þýsku úrvalsdeildarinnar en liðið tapaði óvænt fyrir Lemgo í kvöld, 27-22. Carsten Lichtlein, markvörður Lemgo, átti stórleik en Ólafur náði að skora eitt mark hjá honum í kvöld. Staðan í hálfleik var 14-7, Lemgo í vil, og sigurinn í raun aldrei í hættu. Toppliðin tvö, Kiel og Rhein-Neckar Löwen, unnu bæði leiki sína í kvöld. Kiel er með 45 stig á toppnum en Löwen með 43, fjórum stigum meira en Flensburg sem heldur enn þriðja sætinu. Flensburg á reyndar leik til góða. Kiel vann botnlið Essen, 33-23. Aron Pálmarsson skoarði fjögur mörk fyrir Kiel en Guðjón Valur Sigurðsson ekkert. Rhein-Neckar Löwen hafði betur gegn Hannover-Burgdorf, 39-28. Alexander Petersson skoraði fimm mörk fyrir Löwen og Stefán Rafn Sigurmannsson þrjú. Füchse Berlin er í fjórða sætinu með 39 stig, jafn mörg og Flensburg. Liðið vann Melsungen á útivelli í kvöld, 30-24. Dagur Sigurðsson er þjálfari Berlínarliðsins. Magdeburg, lið Björgvins Páls Gústavssonar markvarðar, vann Wetzlar naumlega á útivelli, 28-27. Fannar Friðgeirsson skoraði ekki fyrir Wetzlar í kvöld og Kári Kristján Kristjánsson spilaði ekki með liðinu vegna meiðsla. Wetzlar, sem byrjaði tímabilið vel í haust, er í tíunda sæti deildairnnar.
Handbolti Mest lesið Ósk pínir Þórdísi til sigurs: „Ég er ekki mamma eða pabbi hennar“ Sport Younghoe sparkað burt Sport Svíar vinna Ólympíubronsið 2010: „Fáránlegt að þetta hafi tekið svona langan tíma“ Sport Þrjú rauð spjöld á Sauðárkróki: Tindastóll fer á Laugardalsvöll Fótbolti Selfoss fagnaði fyrsta sigrinum gegn Fram Handbolti Kristian skoraði og lagði upp í stórsigri gegn fyrrum félögum Fótbolti Björn Borg tók of stóran skammt af eiturlyfjum Sport Valur sótti nauman sigur norður Handbolti Tímabilið byrjar vel hjá lærisveinum Guðjóns Vals Handbolti Stjarnan vann háspennuleik gegn HK Handbolti Fleiri fréttir Selfoss fagnaði fyrsta sigrinum gegn Fram Stjarnan vann háspennuleik gegn HK Valur sótti nauman sigur norður Tímabilið byrjar vel hjá lærisveinum Guðjóns Vals „Reyndum allt en ekkert gekk upp“ Uppgjörið: FH - ÍBV 36-30 | Sigur FH var aldrei í hættu gegn flötu liði ÍBV Ómar markahæstur og Gísli skoraði sigurmarkið Haukar völtuðu yfir ÍR Orri skilaði þremur úr horninu í miklum markaleik Skylda að klippa vel neglur í handbolta Róbert hættir hjá HSÍ Kastaði stól í Eyjum og fékk þriggja leikja bann Janus sagður á leið til Barcelona Sigvaldi markahæstur í öruggum sigri Kolstad Ljóst hvaða lið mætast í 16-liða úrslitum Powerade-bikarsins Uppþot í Eyjum: „Í kvöld töpuðu íþróttirnar“ Hundfúll út í Refina Arnór framlengir til 2028: „Vil sjá hversu langt við getum farið“ Guðjón Valur fagnaði sigri gegn meisturunum Meistararnir keyrðu yfir nýliðana í seinni hálfleik „Þess vegna unnum við“ „Langt frá því að vera eins og við eigum að vera“ Andrea skoraði sjö í öruggum sigri ÍR og nýliðarnir á toppnum Uppgjörið: Valur - Haukar 21-24 | Bikarmeistararnir skákuðu Íslandsmeisturunum Haukar sóttu tvö stig norður Sneypuför Stjörnumanna til Eyja Viggó magnaður í dramatísku jafntefli Staðan grafalvarleg og HSÍ leitar nýrra leiða Uppgjör: Valur - FH 27-32 | Jón Þórarinn skellti í lás þegar FH sótti tvö stig á Hlíðarenda Sjá meira