Erlent

Þremur stúlkubörnum nauðgað og þær myrtar í Indlandi

Nýtt hrottalegt nauðgunarmál hefur vakið óhug meðal almennings í Indlandi. Þremur systrum á aldrinum 6 til 11 ára var nauðgað og þær síðan myrtar áður en líkum þeirra var kastað niður í brunn.

Þetta gerðist í bæ í héraðinu Maharashtra í vesturhluta Indlands ekki langt frá borginni Mumbai.

Í frétt um málið frá AFP fréttastofunni segir að í brunninum hafi einnig fundist skólatöskur systranna og skór þeirra. Búið er að yfirheyra fjóra menn í tengslum við rannsókn málsins en enginn hefur enn verið handtekinn vegna þess.

Systurnar höfðu horfið eftir að þær fóru af heimili sínu í leit að móður sinni fyrir nokkru síðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×