Lífið

Flottir tónleikagestir

Ellý Ármanns skrifar
Myndir/Valdís Thor.
Heineken og gogoyoko.com stóðu fyrir tónleikum í seríunni "Heineken Music" á Slippbarnum síðasta fimmtudag. Hljómsveitin Samaris, sigurvegari Músíktilrauna 2011, kom fram.

Það var þétt setinn bekkurinn þegar tríóið steig á svið. Þau léku lög af tveimur stuttskífum sínum, Hljóma Þú EP og Stofnar Falla EP við frábærar undirtektir tónleikagesta.

Heineken Music er á ferðinni á Slippbarnum einn fimmtudag í hverjum mánuði með frítónleika. Nú þegar hafa Pétur Ben, Tilbury, Berndsen og Low Roar spilað. Næsta kvöld fer fram 7. mars en þá mun hljómsveitin Borko koma fram.

Hér neðar má skoða fleiri myndir sem Valdís Thor ljósmyndari tók á tónleikunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×