Kærir Skaupið meðal annars fyrir kynferðisbrot 3. janúar 2013 14:57 Ástþór Magnússon fyrir framan Útvarpshúsið. Myndin er úr safni.
Ástþór Magnússon hefur kært Pál Magnússon til lögreglu vegna síðasta Áramótaskaups auk þess sem hann hefur kvartað til Fjölmiðlanefndar og óskað eftir því að hún taki málið upp. Þá vill hann meina að skaupið hafi brotið lög um kynferðisafbrot auk nokkurra annarra kafla almennra hegningarlaga. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ástþóri, en sjálfur var hann skotspónn spaugaranna í Áramótaskaupinu, en hann sást yfirleitt í jólasveinabúning í hinu meinta ólöglega glensi. Í tilkynningu Ástþórs segir meðal annars: „Í áramótaskaupi RÚV 31. desember var nauðgurum gert hátt undir höfði og þeim kennt að kaupa tjald yfir glæpi sína. Ofbeldi lyft hæðum hærra og áhorfendum kennt að bregðast við þjóðfélagsgagnrýni með hnefaskaki. Beinlínis var sýnt hvernig slá skal niður mann og lagt til að skjóta annan með haglabyssu. Þá var forseti þjóðarinnar sýndur sem ofbeldisseggur og klappað fyrir. Aldraðir og öryrkjar voru svívirtir. Lög og regluverðir lítilsvirtir. Fjöldamorð sýnt sem eðlilegur verknaður í baráttu um peningavöld. Blaðið sem heldur úti sora Íslenskrar blaðamennsku og tungu fékk reglubundin auglýsingainnskot." Þá segir Ástþór að RÚV hafi algerlega brugðist hlutverki sínu og ýti nú undir, með Skaupinu, að hér rísi ofbeldisþjóðfélag í stað þess að standa vörð um Íslenska friðarmenningu eins og það er orðað í tilkynningu frá Ástþóri. Þá skorar Ástþór að lokum á Fjölmiðlanefndina að taka málið til efnislegrar umfjöllunar. Þá heldur Ástþór því fram að með sýningu á Skaupinu hafi eftirfarandi kaflar almennra hegningarlaga verið brotnir: Brot á almannafriði og allsherjarreglu. Brot, sem hafa í för með sér almannahættu. Lög um kynferðisbrot og að lokum ærumeiðingar og brot gegn friðhelgi einkalífs. Hér fyrir neðan er svo tilkynningin í heild sinni:Friður 2000 hefur um árabil vakið athygli á hættum sem að börnum getur stafað frá ofbeldisefni í fjölmiðlum. Fjölmargar rannsóknir hafa sýnt að ofbeldi í fjölmiðlum eykur hættu á ofbeldi í samfélaginu.Samkvæmt lögum og reglum um starfsemi RÚV ber ríkisfjölmiðlunum skylda að standa vörð um Íslenska tungu og menningu. Lögin eru reglulega brotin af RÚV og mjög gróflega s.l. gamlárskvöld með áramótaskaupi sem fór út yfir öll landamæri friðar og velsæmis. Með útsendingunni braut RÚV m.a. 1.gr laga um Ríkisútvarpið og 27gr. Fjölmiðlalaga auk fleiri greina almennra hegningarlaga.Í áramótaskaupi RÚV 31. desember var nauðgurum gert hátt undir höfði og þeim kennt að kaupa tjald yfir glæpi sína. Ofbeldi lyft hæðum hærra og áhorfendum kennt að bregðast við þjóðfélagsgagnrýni með hnefaskaki. Beinlínis var sýnt hvernig slá skal niður mann og lagt til að skjóta annan með haglabyssu. Þá var forseti þjóðarinnar sýndur sem ofbeldisseggur og klappað fyrir. Aldraðir og öryrkjar voru svívirtir. Lög og regluverðir lítisvirtir. Fjöldamorð sýnt sem eðlilegur verknaður í baráttu um peningavöld. Blaðið sem heldur úti sora Íslenskrar blaðamennsku og tungu fékk reglubundin auglýsingainnskot.Viljum við Íslendingar samfélag ofbeldis þar sem skólabörn eru murkuð niður af fjöldamorðingjum. Þar sem tugir þúsunda manns er limlest og drepið af tilefnislausu á almannafæri á hverju ári. Slíkt samfélag er nú að finna í uppsprettu ofbeldismyndanna, í bandaríkjunum. Í Chicago jókst ofbeldið um 50% á liðnu ári. Í þessari einu borg voru 532 drepnir og tugir þúsunda sárir þetta árið. Ofbeldið er orðið svo samofið samfélaginu að á síðustu tíu árum hefur helmingi fleira fólk verið drepið í götum Chicago en bandarískir hermenn í Afghanistan á sama tíma. Tugir manns eru drepnir í bandaríkjunum á hverjum einasta degi og þykir varla fréttnæmt lengur. Ekki er liðinn mánuður frá þjóðarsorg vegna fjöldamorðs vestan við okkur, en þar eru að meðaltali um tuttugu fjöldamorð á hverju ári. Austan okkar eru nokkrar vikur síðan hjúkrunarkona framdi sjálfsmorð eftir aðför ósmekklegra fjölmiðlaskrípa. Viljum við stýra Íslensku friðarsamfélagi í þessi spor?Friður 2000 hefur fylgst með þessari þróun um árabil. Við framleiddum og afhentum RÚV fyrir mörgum árum Íslenskar stuttmyndir gegn ofbeldi og báðum um að þær yrðu sýndar á undan kvikmyndum og þáttum sem innihalda ofbeldi. Eftir nokkrar birtingar tók RÚV þær úr birtingu og í tíð Páls Magnússonar sem útvarpsstjóra virðist fjölmiðilinn ekki sjá sér fært að birta slíkar upplýsingar til verndar Íslenskum börnum. Engin slíkt viðvörun var birt á undan orðljótu, klámfengnu og ofbeldishneygðu áramótaskaupi sem átti ekkert erindi inná fjölskylduskemmtun. Við höfum hingað til getað skemmt okkur yfir grínþáttum án slíks viðbjóðs sem hér var troðið ofaní þjóðina.Í kjölfar þess sem nú hefur gerst hjá RÚV um þessi áramót er nauðsynlegt að stokka upp hjá ríkisfjölmiðlunum. RÚV hefur algerlega brugðist hlutverki sínu og ýtir nú undir að hér rísi ofbeldisþjóðfélag í stað þess að standa vörð um Íslenska friðarmenningu. Núverandi stjórnendur verða að víkja sjálviljugir eða með valdboði. Hér með er skorað á Fjölmiðlanefnd að taka þetta mál til umfjöllunar. Skorað er á Pál Magnússon og aðra sem hafa komið að birtingu þessa efnis hjá RÚV að taka pokann sinn. Þá er athæfið hér með kært til Lögreglustjórans í Reykjavík sem brot á almennum hegningarlögum m.a. kafla XIII, XVIII, XXII, XXV og vakin athygli á því að við brotunum er fangelsisvist.
Mest lesið Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Innlent Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Innlent „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Innlent Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Innlent Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Innlent Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda Innlent Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Innlent Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent Lögreglan leitar þessara manna Innlent Fleiri fréttir Telja Ríkisútvarpið ekki hafa brotið gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Lögreglan leitar þessara manna Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Rannsaka málið sem hatursglæp Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Eldsvoði á Siglufirði nam þriðjungi bættra tjóna Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Fara áfram fram á varðhald yfir öllum níu Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Raforkueftirlitið fylgist með að lægri raforkukostnaður skili sér til neytenda Spenna á ráðstefnu NATO, raforkukostnaður og biskup um regnbogafánann „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Lokuð akrein á Suðurlandsvegi og kvikmyndatökur á Krýsuvíkurleið Ummæli Trump um Grænland þurfi ekki að koma á óvart Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Bjóða 250 þúsund krónur fyrir staðsetningu hvalveiðiskipanna Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Hættuástand skapist eftir fráhvarf 3G „Hugsið ykkur hvað þetta er nöturleg afmælisgjöf“ Hiti gæti náð tuttugu og fimm stigum um helgina Bruninn á Stuðlum kominn til ákærusviðs og tíu með réttarstöðu sakbornings Umferð eykst milli ára Handtekinn eftir röð innbrota Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Sjá meira
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent