Pvc-klæðnaður í öllum regnbogans litum Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar 21. desember 2013 11:00 Helgi og Beate undirbúa auglýsingu á ólafsfirskum ullarsíðbrókum. Mynd/Einkasafn „
Sum þessara trjáa eru meira að segja svo heimaræktuð að fræið var sótt á bernskuslóðir Beate í Norður-Noregi af jólatrjáasölunum sjálfum á sínum tíma,“ segir Helgi Þórsson sem ásamt konu sinni, Beate Stormo, heldur jólabasar í Populus Tremula í Listagilinu á Akureyri. Þar taka þau saman framleiðslu ársins, eins og þau hafa gert undanfarin ár, og selja meira að segja heimaræktuð jólatré. Ýmsan annan varning er einnig að finna á basarnum. „Af helsta varningi má nefna eldsmíðað skart og svokallaða konuhnífa auk þess sem stór eldsmíðaður kertastjaki í fuglslíki er falur fyrir sanngjarnt verð. Þá má geta þess að Beate hefur fengist við skinnaverkun lengi og stundum í kompaníi með Lene Zachariassen sem einmitt er á basarnum með sitthvað sniðugt úr heimasútuðu skinni og hrosshárum. Ekki má heldur gleyma skinnhúfum með kanínufeldi, náttúrulega úr eigin ræktun. Þá má finna vatnslitamyndir eftir mig og skuggalegar jólasveinamyndir eftir Aðalstein bróður minn á sýningunni,“ segir Helgi og veit ekki hvort hann á að kalla basarinn basar eða sýningu.„Svona sýning væri náttúrulega ekki sjálfri sér lík ef ekki væru veruleg pönkáhrif á sveimi. Þau birtast ekki síst í máluðum bolum og flippuðum pvc-klæðnaði í öllum regnbogans litum.“Eldsmíðaður fullvaxinn kertastjaki.Basarinn er opinn alla helgina og á mánudag frá klukkan 13 til 18 en lengur á Þorláksmessu. Boðið verður upp á glögg og lifandi tónlist á Þorláksmessukveld meðan hljóðfæraleikarar og birgðir endast. Í dag verður Beate við eldsmíðar á staðnum frá klukkan 14 til 16 ef veður leyfir og á sama tíma verður sett upp tískusýning.
Mest lesið Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Lífið Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Lífið 50+: Að hætta að vera þjónustumiðstöð fullorðinna barna Áskorun Sturluð skvísulæti í stórafmæli Tíska og hönnun Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Lífið Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Lífið Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Lífið Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par Lífið Stjörnulífið: Laumugifting í helli Lífið „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Lífið Fleiri fréttir Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Sjá meira