Helmingi fleiri faglærðir leikskólakennarar á Akureyri Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 17. desember 2013 07:00 Félög leikskólakennara og stjórnenda í leikskólum segja öll börn eiga rétt á dvöl í góðum leikskóla þar sem sérfræðingar í leikskólafræðum skipuleggja og leiða starfið. Mynd úr safni. Fréttablaðið/Valli
Í Reykjavík eru eingöngu um þrjátíu prósent starfsmanna leikskólakennarar. Í ályktun frá Félagi leikskólakennara og Félagi stjórnenda í leikskólum segir að öll börn eigi rétt á dvöl í góðum leikskóla og að meginforsenda þess að leikskóli sé góður sé að þar starfi sérfræðingar í leikskólafræðum sem skipuleggja og leiða starfið. En ekki sitji öll börn við sama borð vegna skorts á leikskólakennurum. Á Akureyri eru leikskólakennarar um 66 prósent starfsmanna en þrátt fyrir það er rekstrarkostnaðurinn lægri en í Reykjavík. Gunnar Gíslason fræðslustjóri AkureyrarbæjarGunnar Gíslason, fræðslustjóri Akureyrarbæjar, segir leikskólarýmum hafa fjölgað gífurlega síðustu tólf ár og þar af leiðandi stöðugildum. Samt sem áður hafi fagmenntuðum leikskólakennurum fjölgað í leikskólum bæjarins. „Menntunarstigið jókst mikið hjá okkur eftir að byrjað var að bjóða upp á leikskólamenntun í Háskólanum á Akureyri. Hvatningin var mikil og margir almennir starfsmenn fóru í nám. Það hefur aukið stöðugleika og starfsumhverfið hefur batnað þannig að brottfall verður minna. Þannig að það er hægt að segja að lítil starfsmannavelta á leikskólum skýri lægri rekstrarkostnað þrátt fyrir hærri laun vegna faglærðra.“ Ragnar Þorsteinssonsviðstjóri skóla- og frístundasviðs ReykjavíkurborgarSamkvæmt leikskólalögum eiga tveir þriðju starfsmanna á deildum að vera leikskólakennarar. Í Reykjavík eru leikskólakennarar einn þriðji hluti starfsmanna. „Vegna lengingar leikskólakennaranámsins hefur verið veitt undanþága frá ákvæðinu,“ segir Ragnar Þorsteinsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar. „Við viljum þó gjarnan fjölga faglærðum og nýlega var ákveðið á menntavísindasviði Háskóla Íslands að búið verði til diplómanám næsta haust til að auðvelda starfsfólki að fara í nám. En til viðbótar við faglærða leikskólakennara eru um 20-30 prósent starfsmanna með aðra háskólamenntun.“ Ragnar segir töluverða starfsmannaveltu vera á leikskólum Reykjavíkur. Árið 2012 var brottfall leikskólakennara 12,1 prósent. „Við reynum að sporna við því með því að hvetja til náms og byggja leikskólana upp eins faglega og við getum. En talað hefur verið um lág laun í samhengi við brottfall faglærðra.“
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Fleiri fréttir Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Sjá meira