Segja geislun frá farsímum ekki skaðlega Samúel Karl Ólason skrifar 17. desember 2013 10:33 Mynd/Hilmar Þór
Geislun frá farsímum, farsímamöstrum og staðarnetum, eins og þráðlausum netum á heimilum, hefur ekki skaðleg áhrif á heilsu fólks. Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu norrænu geislavarnastofnanna, eftir að þær fóru yfir niðurstöður rannsókna sem birst hafa í vísindaritum hingað til. Þó eru faraldsfræðilegar rannsóknir á langtímaáhrifum vegna farsímanotkunar enn takmarkaðar og þá sérstaklega á rannsóknir á börnum og unglingum. „Frá því um 1990 hefur notkun farsíma farið sívaxandi og þráðlaus samskipti eru nú hluti af daglegu lífi flestra íbúa Norðurlanda. Þráðlaus samskiptatækni er notuð til að flytja símtöl og textaskilaboð en einnig til að senda margvísleg gögn,“ segir í yfirlýsingu norrænna geislavarnastofnana. „Hópar sérfræðinga, bæði frá einstökum löndum og alþjóðlegir, hafa reglulega farið yfir greinar sem birst hafa í vísindaritum til að meta hvort komið hafi fram vísbendingar um hættu á krabbameinum eða öðrum langvinnum sjúkdómum vegna geislunar við þráðlaus samskipti.“ Hópur sérfræðinga á vegum Alþjóðakrabbameinsstofnunarinnar birti í maí 2011, niðurstöður og flokkuðu geislun frá fjarskiptatækni sem hugsanlega krabbameinsvaldandi í mönnum. „Þessi flokkun var aðallega byggð á niðurstöðum nokkurra faraldsfræðilegra rannsókna sem gáfu til kynna aukna hættu á krabbameinum í heila meðal fullorðinna farsímanotenda.“ Síðan þá hafa verið birtar niðurstöður faraldsfræðilegra rannsókna sem sýna ekki að farsímanotkun auki áhættu á æxlum hjá notendum. Þó er enn of snemmt að draga afdráttarlausar ályktanir um hættu á heilaæxlum hjá börnum og unglingum. „Nýjar faraldsfræðilegar rannsóknir hafa einnig beinst að öðrum áhrifum á heilsu en myndun krabbameina. Einhver slík áhrif hafa komið fram en takmarkanir á aðferðarfræði rannsóknanna koma í veg fyrir að hægt sé að draga afdráttarlausar ályktanir um orsakatengsl. Rannsóknir um tiltekin áhrif eru einnig fáar og því ekki hægt að staðfesta niðurstöðurnar.“ Nýlegar kannanir sýna að þrátt fyrir að mikil aukning hefur verið á notkun þráðlausra samskipta, hefur geislun frá staðarnetum á svæðum ætluðum almenningi utandyra, sem og innanhúss í skólum, skrifstofum og hýbýlum fólks haldist langt undir viðmiðunarmörkum.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Fleiri fréttir Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Sjá meira