Innlent

Ekkert trúnaðarbrot við Pál til staðar

Jakob Bjarnar skrifar
Páli Magnússyni og Ingva Hrafni greinir á um ástæður uppsagnar Páls.
Páli Magnússyni og Ingva Hrafni greinir á um ástæður uppsagnar Páls.
Páll Magnússon hefur látið af störfum og í tilkynningu frá honum kemur fram að það sé vegna þess að hann njóti ekki lengur trausts stjórnar. Eða eins og segir í tilkynningunni að traustið hafi ekki verið fyrir hendi og því hljóti leiðir að skilja. Ingvi Hrafn Óskarsson, formaður stjórnar RÚV ohf, segir þetta ekki allskostar rétt.

„Það er ekki forsenda hjá stjórninni fyrir þessari niðurstöðu; að það hafi átt sér stað einhvers konar trúnaðarbrot,“ segir Ingvi Hrafn. Og hann heldur áfram:

„Ný lög um ríkisútvarpið fela í sér að stjórnin þarf nú að breyta ráðningafyrirkomulagi útvarpsstjóra og festa ráðninguna til fimm ára. Stjórn hefur komist sameiginlega að þeirri niðurstöðu að það sé óhjákvæmilegt að auglýsa stöðuna núna, af þessu tilefni. Þegar þessi afstaða stjórnar lá fyrir var það sameiginleg ákvörðun stjórnar og Páls að hann myndi láta af störfum.“

Páll var á ótímabundnum samningi og stjórn hefði þess vegna getað ráðið hann áfram, samningur hans mun ekki hafa verið bundinn af nýjum lögum. Stjórnin ákvað hins vegar að rétt væri, í ljósi anda laganna, að auglýsa stöðuna. Páll mun hafa metið það sem svo að um vantraust væri að ræða. En, eins og Ingvi Hrafn segir er það ekki rétt metið, frá sjónarhóli stjórnar sem þakkar Páli vel unnin störf. Að sögn Ingva Hrafns verður staða útvarpsstjóra auglýst laus við fyrsta tækifæri.

...

Páll hefur verið í stóli útvarpsstjóra í átta ár en í mars á þessu ári tók ný lög gildi og segir í 11. grein laga um Ríkisútvarpið:

11. gr.Útvarpsstjóri.

Útvarpsstjóri er framkvæmdastjóri Ríkisútvarpsins og skal uppfylla hæfisskilyrði skv. 5. mgr. 9. gr.

Útvarpsstjóri skal ráðinn til fimm ára í senn og er heimilt að endurráða hann einu sinni. Hann hefur daglegan rekstur Ríkisútvarpsins með höndum og er jafnframt æðsti yfirmaður allrar dagskrárgerðar.

Við daglegan rekstur Ríkisútvarpsins skal útvarpsstjóri hafa að leiðarljósi hlutverk og skyldur þess eins og kveðið er á um í lögum þessum.

Útvarpsstjóri ræður aðra starfsmenn Ríkisútvarpsins. Stöður stjórnenda Ríkisútvarpsins skulu auglýstar opinberlega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×