Stjórn Ríkisútvarpsins hefði getað samið við Pál um nýjan ráðningarsamning Heimir Már Pétursson skrifar 17. desember 2013 14:51
Katrín Jakobsdóttir fyrrverandi menntamálaráðherra telur að stjórn Ríkisútvarpsins hafi ekki þurft að auglýsa stöðu útvarpsstjóra á þessum tímapunkti, eins og stjórnin ákvað að gera. Stjórnin hafi haft val. Í 11. grein laga um Ríkisútvarpið sem tóku gildi í mars á þessu ári segir: „Útvarpsstjóri skal ráðinn til fimm ára í senn og er heimilt að endurráða hann einu sinni“. En Páll Magnússon var fyrst ráðinn útvarpsstjóri árið 2005 og hafði ótímabundinn ráðningarsamning. Ingvi Hrafn Óskarson, stjórnarformaður Ríkisútvarpsins, segir að ný lög um Ríkisútvarpið feli í sér að stjórnin þurfi að breyta ráðningafyrirkomulagi útvarpsstjóra og festa ráðninguna til fimm ára. Stjórnin hafi komist sameiginlega að þeirri niðurstöðu að óhjákvæmilegt væri að auglýsa stöðuna núna, af þessu tilefni. Þegar þessi afstaða stjórnar hafi legið fyrir hafi það verið sameiginleg ákvörðun stjórnar og Páls að hann myndi láta af störfum. Páll segir hins vegar að traustið hafi ekki verið fyrir hendi og því hljóti leiðir að skilja. Katrín Jakobsdóttir var menntamálaráðherra þegar lögum um Ríkisútvarpið var breytt í vor. „Ég get nú ekki skilið þessa grein öðruvísi en svo að en að stjórnin hafi talsvert svigrúm til að ákveða hvað hún gerir. Það er að segja að hún geti valið að auglýsa eða ekki. Þannig að ég hef skilið þessa grein þannig,“ segir Katrín.Þannig að í sjálfu sér hefði stjórnin getað samið við Pál upp á nýjan fimm ára samning?„Þarna er auðvitað verið að skipta um lagaumhverfi hvað varðar ráðningarkjör útvarpsstjóra og það er auðvitað tekið fram að það þurfi að taka tillit til þess í þeim ákvörðunum sem eru teknar. En eins og þetta er orðað í lögunum þá hefur stjórnin töluvert svigrúm innan þessarar greinar. Þannig skil ég það,“ segir Katrín.Þannig að hún hefur þetta val, að auglýsa eða gera nýjan ráðningarsamning?„Já, ég hefði talið það vera skilninginn á greininni,“ segir Katrín Jakobsdóttir fyrrverandi menntamálaráðherra.
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira