Íslenskt hráefni kynnt fyrir þýskum matgæðingum 30. ágúst 2013 14:09 Þráinn Freyr Vigfússon fyrirliði íslenska kokkalandsliðsins Mynd/Anton Brink
Íslenskt sjávarfang og lambakjöt verða í aðalhlutverki í fjölmennri matarveislu sem haldin verður í húsakynnum þýsku verslunarkeðjunnar Frischeparadies í Berlín þann 1. september nk. Veislan er liður í kynningarátaki Frischeparadies á ferskum íslenskum hágæða afurðum sem stendur yfir í septembermánuði, segir í tilkynningu frá Íslandsstofu sem er samstarfsaðili Frischeparadies í þessari kynningu ásamt sendiráði Íslands í Berlín. Markmiðið er að kynna íslenskt hráefni og vekja almenna athygli á Íslandi og íslenskri matarmenningu. Boðið verður upp á sjö rétta matseðil þar sem fimm réttir eru úr íslensku hráefni og mun Þráinn Freyr Vigfússon, núverandi fyrirliði íslenska kokkalandsliðsins og matreiðslumaður ársins árið 2007, elda einn þessara rétta. Samhliða heimsókn sinni til Berlínar mun Þráinn Freyr elda íslenskan þorsk í matreiðslu¬þættinum Berlin Kocht. Sendiherra Íslands í Þýskalandi, Gunnar Snorri Gunnarsson, mun vera Þráni til halds og trausts í útsendingunni og kynna íslenskar matvörur fyrir þýskum matgæðingum en um 180 þúsund Berlínarbúar horfa vikulega á þáttinn. Lambakjötið er nýjung í framboði Frischeparadies og verða afurðir frá SAH á Blönduósi til sölu í verslunum þeirra í sjö borgum í Þýskalandi og í verslun þeirra í Vín í Austurríki næstu fjóra mánuði.
Mest lesið Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi Innlent Fleiri fréttir Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Sjá meira