Sandgerðingar óvænt krafðir um lóðarleigu Stígur Helgason skrifar 8. ágúst 2013 07:15 Íbúar eru margir hverjir óánægðir með vinnubrögð bæjaryfirvalda og sumir segja þau "til skammar“.
Fjöldi Sandgerðinga hefur undanfarna daga fengið sent bréf frá bæjaryfirvöldum þar sem þeim er tilkynnt um óvænta hækkun fasteignagjalda. Ástæðan er sú að bærinn hefur samið við landeigendur um að innheimta lóðarleigu sem ekki hefur verið rukkað fyrir í fjölda ára. Upphæðin nemur tugum þúsunda á ári. Á sérstökum umræðuvef Sandgerðinga á Facebook lýsa margir íbúar bæjarins yfir óánægju með bréfið. Þar velta menn fyrir sér hvort þegar gerðir lóðarsamningar séu ekki enn í fullu gildi og segja jafnframt að eðlilegra hefði verið að bæjaryfirvöld tilkynntu þeim um málið með öðrum hætti en að senda þeim „innheimtubréf“. Ganga sumir svo langt að segja vinnubrögð bæjaryfirvalda „til skammar“.Sigrún ÁrnadóttirSigrún Árnadóttir, bæjarstjóri í Sandgerði, segir í samtali við Fréttablaðið að landeigendurnir, félögin Garður ehf. og Fiskiðjan ehf., hafi ekki innheimt lóðarleigu um lengri tíma þótt það hefði verið fullkomlega heimilt. Fulltrúar þeirra hafi komið að máli við bæjaryfirvöld og óskað eftir samkomulagi um að bærinn sæi um innheimtuna. Sigrún kveður sér einnig hljóðs í umræðunum á Facebook og segir þar að samkomulagið hafi verið gert með hagsmuni bæjarbúa í huga. Landeigendum hefði verið í sjálfsvald sett að rukka svo til hvað sem væri og innheimta jafnframt gjaldið fyrir síðustu fjögur ár. Bærinn hafi hins vegar séð til þess að gjaldið yrði 1,5 prósent af fasteignamati, sem er sambærilegt við það sem bærinn rukkar af eigin lóðum, og að ekki yrði rukkað aftur í tímann. „Fólk hefur komið og hringt og fengið svör og skýringar. Það er ekkert óeðlilegt að fólk sé ekki sátt við að fá reikninga sem það hafði ekki gert ráð fyrir eða búist við. Þetta eru auðvitað viðbótarútgjöld fyrir heimili sem hingað til hafa ekki borgað lóðarleigu,“ segir Sigrún við Fréttablaðið. Hún segir nokkuð mörg heimili hafa fengið bréf af þessu tagi, en hún hafi þó ekki töluna á reiðum höndum. Það hafi þó verið vel innan við helmingur íbúa í Sandgerði. Yfirleitt sé leigan á bilinu 20 til 40 þúsund krónur á ári. Sumir íbúar hafa lagt til að haldinn verði íbúafundur í bænum vegna málsins. „Ég geri ráð fyrir að við munum gera það og fara þar yfir þessi landamál yfir höfuð,“ segir Sigrún.
Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Margaret Hamilton er látin Erlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent Fleiri fréttir Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Sjá meira