Vigfús Rúnarsson, varaformaður Vöku, var í hressari kantinum þegar blaðamaður Vísis náði af honum tali.
„Já, þetta er náttúrulega stórsigur. Þetta er ótrúlegt," sagði Vigfús sem skipaði fyrsta sætið á lista Vöku á heilbrigðisvísindasviði. Rúmlega 5000 greiddu atkvæði í kjörinu sem svarar til um 35% kosningaþátttöku.
„Það sést að hverju við erum búin að vinna og hver vilji stúdenta er, sagði Vigfús."
Mjórra var á munum í kosningu til Stúdentaráðs í fyrra. Þá fékk Vaka tíu menn kjörna en Röskva átta.

Úrslitin á sviðunum fimm var sem hér segir.
Félagsvísindasvið
Röskva 1 sæti 7
Vaka 6 sæti af 7
Heilbrigðisvísindasvið
Röskva 1 af 5
Vaka 4 af 5
Hugvísindasvið
Röskva 2 af 5
Vaka 3 af 5
Menntavísindasvið
Röskva 1 af 5
Vaka 4 af 5
Verk- og náttúruvísindasvið
Röskva 1 af 5
Vaka 4 af 5
