Sextán kynferðisbrot til rannsóknar á Suðurnesjum 26. febrúar 2013 09:58 Mynd Getty
Alls eru nú 16 kynferðisbrotamál til meðferðar við embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum samkvæmt tilkynningu frá embættinu. Þrettán þeirra eru enn til rannsóknar en þrjú eru til afgreiðslu hjá lögfræðideild embættisins. Frá áramótum hafa 12 kynferðisbrot komið til rannsóknar sem er talsverður fjöldi mála á tæplega tveimur mánuðum. Börn eru brotaþolar í 12 þessara mála. Í 6 tilvikum er um ný eða nýleg brot að ræða en í 6 tilvikum gömul brot sem ætla má að séu fyrnd í einhverjum tilvikum. Í 3 tilvikum af þessum gömlu brotum voru brotaþolar börn þegar brotin áttu sér stað en skýrðu ekki frá þeim fyrr en á fullorðinsaldri. Þess má geta að í framangreindum málum var í tveimur tilvikum um tælingu/tilraun til tælingar í gegnum internetið að ræða. Af þeim kynferðisbrotamálum sem komu til rannsóknar hjá lögreglunni á Suðurnesjum árið 2012 voru 8 nauðgunarmál og voru 5 þeirra afgreidd fyrir áramótin. Meðal rannsóknartími þeirra var 47,6 dagar og meðalmeðferðartími hjá lögfræðideild 7,4 dagar að því er fram kemur í tilkynningu. Tvö málanna voru afgreidd eftir áramótin þannig að eitt er enn til rannsóknar. Í rannsóknardeild alvarlegra mála hjá embættinu starfa 5 rannsóknarlögreglumenn sem auk kynferðisbrotarannsókna sinna rannsóknum annarra ofbeldisbrota í umdæminu ásamt fjölda annarra alvarlegra brotaflokka. Enginn hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna málanna.
Mest lesið Brimborg og Askja innkalla bifreiðar Bílar Óttast gremju uppgjafahermanna í Rússlandi Erlent Barnajólaópera sýnd í skólum á Norðurlandi Innlent Ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán bara tímabundin Innlent Fundi lauk á fimmta tímanum án samnings Innlent Efast um að Bandaríkin leyfi sjálfstætt Grænland Erlent Pornographers’ Convention CANCELLED! News in english Taka tolla Trumps í flýtimeðferð Erlent Porn Conventioneers Hit Back! News in english June 17th is Independence Day News in english Fleiri fréttir Ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán bara tímabundin Útsending komin í lag Forseti biðlar til þingmanna og ólíkleg þátttaka í Eurovision Skipar ekki nýjan vararíkissaksóknara Teppa vegna minniháttar umferðarslyss á Kringlumýrarbraut Fámenn mótmæli við þingsetningu: „Afætur! Aumingjar! Rasistar!“ Skipar nefnd um jafnrétti karla Hvatti þingmenn til að halda ekki áfram að setja met í málþófi Bein útsending: Guðsþjónusta og setning Alþingis „Við munum reyna að bæta öll mál“ „Er þetta allt sem Ísland getur gert?“ Bókun 35 verði keyrð í gegnum þingið Ríkisstjórnin sýnir á spilin og Alþingi sett í dag Ekki útgangspunktur að beita ákvæðinu Mikill meirihluti hlynntur Hvammsvirkjun Ruddust inn til manns og mölbrutu í honum tennurnar Boða 157 mál á 157. löggjafaþingi og hér er það helsta Kínversk ferðaskrifstofa fær ekki áheyrn hjá Hæstarétti Gagnrýnir hæstu ríkisútgjöld sögunnar í fjárlagafrumvarpi Svona var kynning ríkisstjórnar á þingmálum vetrarins Reyksprengju kastað inn á pall í Hafnarfirði Verið ættleiddur af Íslendingum Fyrsti dagur Kvikmyndaskólans: „Það besta sem hefur gerst fyrir skólann síðan í apríl“ Hækka hámarksgreiðslur um hundrað þúsund krónur Uppfæra ekki fríverslunarsamning og banna tvo ráðherra Tveir fluttir til aðhlynningar eftir árekstur á Suðurlandsvegi Tekist á um fjárlög, lykkjumálið og aleigan í rafmynt Einn bílstjóri án leyfis og skráningar „Sultaról rithöfunda enn hert“ í fjárlögum Óásættanlegt að almennir starfsmenn séu beittir óeðlilegum þrýstingi Sjá meira