Konum vantreyst innan lögreglunnar Jóhanna Margrét Einarsdóttir skrifar 16. október 2013 14:33
Konur í lögreglunni eru meðvitaðar um að staða karla í lögreglunni sé betri en kvenna. Meirihluti kvenna gerir sér grein fyrir því að karlar og konur hafi ekki jafna möguleika innan lögreglunnar og tvær af hverjum þremur finnst stundum, oft eða alltaf komið öðruvísi fram við þær en karla. Þetta er meðal þess sem hægt er að lesa í könnun sem embætti ríkislögreglustjóra og Háskóli Íslands stóðu fyrir á vinnumenningu meðal starfandi lögreglumanna. Þar segir að hægt sé að túlka niðurstöður könnunarinnar á vinnumenningu innan lögreglunnar þannig að konur treysti sér, og öðrum konum, en að karlar eru ekki tilbúnir til að treysta eða viðurkenna konur sem jafningja sína. Til dæmis treysta konur sér, og öðrum konum, til þess að framkvæma hættuleg og erfið verkefni til jafns við karla, og konur telji sig ekki þurfa vernd karla í hættulegum verkefnum. Aftur á móti virðast karlar síður treysta konum fyrir slíkum verkefnum og eru þriðjungur karla á því að karlar þurfi að vernda konur. Ljóst er að því erfiðari sem verkefnin eru talin vera því síður eru karlar tilbúnir til þess að samþykkja að konur jafnt og karlar sinni þeim. Í könnuninni kemur fram að nær allar konur treysta sér, og öðrum konum, til að starfa við hlið karla í ávana- og fíkniefnadeild LRH, en aðeins tveir af hverjum þremur körlum eru á því máli. Sérsveitin er augljóslega talið vígi karla, en konur eru almennt opnari fyrir því en karlar að konur jafnt sem karlar starfi í sveitinni og að konur hafi þann líkamlega styrk sem þarf til að vera í sveitinni. Karlar eru frekar sammála því en konur að karlar séu hæfari en konur til að vera í sérsveitinni. Viðhorf yngsta aldurshópsins eru mun íhaldssamari en þeirra sem eldri eru. Þetta á sérstaklega við í viðhorfum til staða sem veita völd og virðingu, sérsveitarinnar. Yngsti aldurshópurinn frekar en aðrir aldurshópar, telja að karlar séu hæfari en konur til að annast erfið og hættuleg verkefni. Það vekur sérstaka athygli að á sama tíma og yngsti aldurshópurinn veitir svör sem telur konur síður hæfar, þá telur fjórðungur aldurshópsins stöðu kvenna vera betri en karla innan lögreglunnar. Niðurstöður rannsóknarinnar á vinnumenningu innan lögreglunnar benda til að yngsti aldurshópur lögreglukarla óttist um stöðu sína og sé annt um að viðhalda henni. Lögreglumenn á aldrinum 20-29 ára eru almennt reynsluminnstu lögreglumennirnir, það kann að vera að hinir reynslumeiri hafi meiri reynslu af því að starfa með konum og hafi þar af leiðandi jákvæðari viðhorf til kvenna.
Tengdar fréttir Jafnréttisáætlun lögreglunnar endurskoðuð Embætti ríkislögreglustjóra og Háskóli Íslands stóðu fyrir könnun á vinnumenningu meðal starfandi lögreglumanna síðast liðið vor. 16. október 2013 14:20 Einelti innan lögreglunnar Einelti er útbreitt vandamál innan lögreglunnar. Einn af hverjum fimm lögreglumönnum segist hafa orðið fyrir einelti í lögreglunni, og flestir segja af hendi yfirmanns 16. október 2013 14:27 Konur fá ekki stöðuhækkanir í lögreglunni Framgangur kvenna innan lögreglunnar er mjög hægur. Konur upplifa að þær muni ekki ná framgangi í starfi líkt og karlar. 16. október 2013 14:24 Kynferðisleg áreitni innan lögreglunnar útbreytt vandamál Þriðjungur kvenna í lögreglunni hefur orðið fyrir kynferðislegri áreitni oftar en tvisvar sinnum á sex mánaða tímabili á móti tæplega 18% karla. Konur verða frekar og oftar fyrir kynferðislegri áreitni en karlar. 16. október 2013 14:37 Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Fleiri fréttir Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Sjá meira
Jafnréttisáætlun lögreglunnar endurskoðuð Embætti ríkislögreglustjóra og Háskóli Íslands stóðu fyrir könnun á vinnumenningu meðal starfandi lögreglumanna síðast liðið vor. 16. október 2013 14:20
Einelti innan lögreglunnar Einelti er útbreitt vandamál innan lögreglunnar. Einn af hverjum fimm lögreglumönnum segist hafa orðið fyrir einelti í lögreglunni, og flestir segja af hendi yfirmanns 16. október 2013 14:27
Konur fá ekki stöðuhækkanir í lögreglunni Framgangur kvenna innan lögreglunnar er mjög hægur. Konur upplifa að þær muni ekki ná framgangi í starfi líkt og karlar. 16. október 2013 14:24
Kynferðisleg áreitni innan lögreglunnar útbreytt vandamál Þriðjungur kvenna í lögreglunni hefur orðið fyrir kynferðislegri áreitni oftar en tvisvar sinnum á sex mánaða tímabili á móti tæplega 18% karla. Konur verða frekar og oftar fyrir kynferðislegri áreitni en karlar. 16. október 2013 14:37