„Þetta var ótrúlega indæll kall“ Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 28. september 2013 14:26 Tryggvi var útigangsmaður um langt skeið og ferðaðist um stræti borgarinnar á hjóli.
Tryggvi Gunnlaugsson lést í gær en hann er mörgum Reykvíkingum kunnur fyrir sérstakt útlit og fas. Hann var útigangsmaður um langt skeið og ferðaðist um stræti borgarinnar á hjóli. Tryggva, sem margir þekktu sem Tryggva Hring, er minnst víða á samfélagsmiðlunum í dag og meðal þeirra sem það gera er sjónvarpsmaðurinn Helgi Seljan. Helgi rifjar upp kynni sín af Tryggva á Facebook-síðu sinni en þeir hittust fyrst í sjoppu þegar Helgi var unglingur. „Við töluðum lengi saman og ég man hvað það kom mér á óvart að þessi slæpti og illa farni maður var skýr og minnugur um smæstu smáatriði,“ skrifar Helgi en seinna urðu þeir Tryggvi nágrannar. „Ég átti oft eftir að hitta Tryggva sem auðnaðist það sem fáir trúðu að gæti gerst; að hætta að drekka eftir að hafa verið á götunni í fjölda ára. Menn hafa fengið verðlaun fyrir minni sigra en þann.“ „Þetta var ótrúlega indæll kall,“ segir Helgi í samtali við Vísi og rifjar upp sögu af því þegar mikillar reiði gætti í samfélaginu vegna myndbands sem náðist af hópi ungra pilta að hella vatni yfir Tryggva og niðurlægja hann. Þá hafi Tryggvi sjálfur komið drengjunum til varnar. „Ég man að hann baðst vægðar fyrir þeirra hönd og gerði lítið úr þessu. Þetta kennir manni að maður á ekki alltaf að hlusta á belginn í sjálfum sér og ákveða að þessi sé svona og hinsegin.“
Mest lesið „Þegar við komum til Íslands munum við stöðva hann“ Innlent Hitamet slegið í Danmörku: Börnin að bráðna inni á sófanum Innlent Foreldrar standi eftir „einir, örmagna og án stuðnings“ Innlent Gotta-rennibraut lokað vegna slysahættu Innlent „Ég ætla bara að halda mínu striki, það verða tíu gusur hér um helgina“ Innlent Íslendingur hlaut þriðja vinning í EuroJackpot Innlent Flest ljósin tengd stýritölvu en kerfið ekki fullnýtt Innlent Minni hamingja meðal landsmanna og fleiri einmana Innlent Bíður milli vonar og ótta á meðan fjölskyldan er föst undir hótelrústum Innlent Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Erlent Fleiri fréttir Hrun úr Reynisfjalli: „Ansi mikil bergfylla sem hefur farið þarna niður“ Bíður milli vonar og ótta á meðan fjölskyldan er föst undir hótelrústum Notust við dróna við að ná utan um stórfellda líkamsárás Hætta á að námsframboð dragist saman Hitamet slegið í Danmörku: Börnin að bráðna inni á sófanum „Þegar við komum til Íslands munum við stöðva hann“ Minni hamingja meðal landsmanna og fleiri einmana Þörf sé á að endurhugsa fjármögnum NPA-þjónustu Rétt rúmur helmingur myndi segja já í ágúst Foreldrar standi eftir „einir, örmagna og án stuðnings“ Gotta-rennibraut lokað vegna slysahættu Flest ljósin tengd stýritölvu en kerfið ekki fullnýtt Tilkynnt um einstakling að stunda sjálfsfróun í runna „Ég ætla bara að halda mínu striki, það verða tíu gusur hér um helgina“ Íslendingur hlaut þriðja vinning í EuroJackpot Erfitt fyrir launafólk að taka aftur mark á loforðum stjórnvalda og fyrirtækja Hrafnagilshverfi stækkar ört Verðhækkanirnar vonbrigði Fjármálaráðherra telur tæpt að forsenduákvæði kjarasamninga haldi Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Baðlón sýknað af kröfum fyrrverandi starfsmanns Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Fella þurfi niður tungumálaþröskulda og auka traust á kerfinu Brottfararstöð þurfi að hafa pláss fyrir þrjátíu manns Áhyggjuefni að markmið kjarasamninga sé ekki að nást Fiskverð í hæstu hæðum og strandveiðimenn brosa allan hringinn Verðbólgan eykst þvert á spár og fiskverð í hæstu hæðum „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Nöfn úr rannsókn sáust í kynningarmyndbandi Sjá meira