Fötluð börn eru oft utanveltu og gleymd hó skrifar 31. maí 2013 07:00 UNICEF undirstrikar að allir nytu góðs af ef horft væri til þess hvers fötluð börn eru megnug.
Meta þarf fötluð börn að verðleikum og meðtaka þau sem mikilvæga þátttakendur í samfélaginu frekar en að einblína á takmarkanir þeirra og sjá þau sem þiggjendur. Breytt viðhorf eru til hagsbóta fyrir alla. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, um stöðu barna í heiminum. Í fréttatilkynningu frá UNICEF á Íslandi kemur fram að á heimsvísu hafi fötluð börn margfalt minna aðgengi að menntun en önnur börn. Jafnframt segir að Ísland hafi ekki enn fullgilt samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks þótt vinna við fullgildinguna standi yfir í innanríkisráðuneytinu. Í skýrslu UNICEF er undirstrikað að nær 130 ríki hafi fullgilt samninginn og þau sem eftir standa eru hvött til að gera það sama hið fyrsta. Enn fremur að ráðast þurfi í aðgerðir til að eyða fordómum og veita fjölskyldum þann stuðning sem þarf til að fötluð börn fái notið fullra mannréttinda. Samkvæmt skýrslu UNICEF er tæplega fjórum sinnum líklegra að fötluð börn í 17 efnameiri ríkjum heims verði fyrir ofbeldi en önnur börn. Börn með þroskahömlun eru auk þess tæplega fimm sinnum líklegri til að verða fyrir kynferðislegu ofbeldi en önnur. Í skýrslu sem UNICEF á Íslandi gaf út árið 2011 kemur fram að heyrnarlaus börn eru þrisvar sinnum líklegri til að verða fyrir kynferðislegu ofbeldi hér á landi en önnur börn.
Mest lesið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Skjálftahrina úti af Reykjanesi Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Maðurinn er fundinn Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Fleiri fréttir Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Sjá meira