„Ofur lúðalegt en fáránlega skemmtilegt“ Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 31. maí 2013 15:58 Tónlistarmaðurinn Kristján Eldjárn hlaut rannsóknarstyrk til að rannsaka tölvusjón við hinn virta Caltech í Kaliforníu. MYND/EYGLÓ GÍSLADÓTTIR „
Ég var mjög hissa á að fá styrkinn þar sem ég er á fyrsta ári, en það eru yfirleitt annars árs nemar sem fá þetta tækifæri. Þetta er alveg rosalega mikill heiður og geðveikt tækifæri að fá að vinna verkefnið við einn virtasta rannsóknarháskóla í heimi,“ segir Kristján Eldjárn, meðlimur danshljómsveitarinnar Sykurs. Hann leggur stund á nám í tölvunarfræði og er er einn þeirra sautján nemenda við Háskóla Íslands sem munu dvelja við rannsóknir og nám við heimsþekkta háskóla í Bandaríkjunum í sumar. Kristján mun rannsaka svokallaða tölvusjón við California Institute of Technology,Caltech, í Kaliforníu. Kristján hefur í nógu að snúast þar sem Sykur vinnur hörðum höndum að nýrri plötu þessa dagana. „Það er svolítið púsl að vera að taka upp plötu einmitt á þessum tíma, en ég er bara á fullu að taka upp minn hluta núna. Vonandi hefst þetta allt saman áður en ég fer út í næstu viku.“ Rannsóknarverkefni Kristjáns snýst um svokallaða tölvusjón. „Í stuttu máli er ég að kenna tölvum að þekkja hluti í sjón. Þetta er alveg rosalega flókið en ég hef mjög gaman af þessu. “ Aðspurður segist hann ekki tvinna námið saman við tónlistina heldur reynir hann að halda hlutunum aðskildum. „Maður hefur alltaf tónlistina og það er nóg að gera í henni, en mér finnst gott að hafa eitthvað praktískt í bakhöndinni þegar listin bregst. Tölvunarfræðin er alveg ofur lúðaleg en á sama tíma fáránlega skemmtileg. Mér finnst bara fínt að vera lúði úti í horni inn á milli.“
Mest lesið Davos-vaktin: Beðið eftir ræðu Trumps Erlent Sex sagt upp í menntamálaráðuneytinu Innlent Miðflokkurinn nálgast Samfylkingu Innlent Stjórnarformaður Vélfags handtekinn í aðgerðum saksóknara Innlent Vél Trump snúið við en ræðan enn á dagskrá Erlent Hvað býr bakvið sólgleraugu Macron? Erlent Vinnuslys þar sem maður „missti höndina inn í vals“ Innlent „Það er ekki laust við að það fari um mann“ Innlent Óvæntur blaðamannafundur: Las „afrekabókina“ og sýndi myndir af glæpamönnum Erlent Eldræða Carney: „Ef þú ert ekki við borðið þá ertu á matseðlinum“ Erlent Fleiri fréttir Með 29 kíló af maríjúana í töskunum Brúnni yfir Helluvatn lokað í fimm vikur Stjórnarformaður Vélfags handtekinn í aðgerðum saksóknara „Það er ekki laust við að það fari um mann“ Miðflokkurinn nálgast Samfylkingu Milljarða útspil meirihlutans „fullkomlega ábyrgðarlaust“ og lykti af prófkjörsbaráttu Ákærður fyrir nauðgun á nýársdag Markverð tíðindi í nýrri Maskínukönnun um fylgið á landsvísu Hátt í tíu þúsund manns án atvinnu í desember Sex sagt upp í menntamálaráðuneytinu Hættur í Viðreisn og sækist eftir formennsku í SI Vinnuslys þar sem maður „missti höndina inn í vals“ Baráttan um Framsókn muni snúast um sögulega stöðu Ráðherra segir ríkisvaldið gefa í með framkvæmdir Sverrir Bergmann hættir í bæjarstjórn Norðfirðingar gleðjast að sjá loðnuna birtast Annasamasti dagur á bráðamóttöku í lækna minnum Neituðu að greiða starfsfólki á leið í eigin rekstur uppsagnarfrest Gríðarleg fjölgun hótana og dæmi um að setið sé fyrir lögreglumönnum Kvaðst hafa drepið fjölskylduna og ætlað að stinga sig í hjartað Ofbeldi gegn lögreglumönnum magnast og baráttan hafin um Framsókn Nemi í jarðfræði hlaut Nýsköpunarverðlaunin „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Brynjar skýtur föstum skotum á Flokk fólksins „Fyrsta ár ríkisstjórnarinnar hefur mistekist“ Magnús Eiríksson borinn til grafar Heitt í hamsi vegna Grænlands Hafi nauðgað sex ára stúlku og eiginkonu sinni og birt af því myndir Dýr framtíðarlausn að færa þjóðveginn vegna grjóthruns Borgarstjórn biður vöggustofubörnin afsökunar Sjá meira