Engin endurnýjun á fimm árum hjá sérfræðilæknum Svavar Hávarðsson skrifar 18. nóvember 2013 06:00 Starfsaðstæður og starfsandi er sagður skipta miklu rétt eins laun þegar búseta er ákveðin. fréttablaðið/gva
Meðalaldur sjálfstætt starfandi sérfræðilækna hefur hækkað um fimm ár á jafnmörgum árum. Þetta þýðir á mannamáli að í þessum hópi lækna hefur engin endurnýjun orðið og staðan er að verða grafalvarleg, segir Kristján Guðmundsson, háls-, nef- og eyrnalæknir. Sömu sögu er að segja um heilsugæslu- og sjúkrahúslækna, að kalla má. Kristján hefur skoðað aldurssamsetningu sjálfstætt starfandi sérfræðilækna árin 2007 til 2012 en niðurstöður sínar birti hann í nýjasta tölublaði Læknablaðsins. Kristján sýnir fram á að í lok síðasta árs var þriðjungur læknisverka unninn af læknum sem eru 60 ára og eldri. Fimm árum fyrr var hlutfallið aðeins 19%. Þegar hin hliðin á peningnum er skoðuð kemur það sama í ljós. Árið 2007 voru 42 prósent starfseminnar á hendi lækna 49 ára og yngri en þetta hlutfall er dottið niður í 25 prósent í lok tímabilsins. Innan við prósent læknisverka er nú unnið af sérfræðilæknum innan við fertugt en var á sjötta prósent árið 2007. Þessi þróun er reyndar fjarri því að vera bundin við hóp sjálfstætt starfandi sérfræðinga. Gögn Læknafélags Íslands sýna að meðalaldur heilsugæslulækna hefur á sama tímabili farið úr 50 árum í 54 ár og sjúkrahúslækna úr 49 í 52 ár. „Þessi þróun er grafalvarleg, hvernig sem á hana er litið,“ segir Kristján. „Hvað þetta þýðir nákvæmlega er mjög erfitt að spá fyrir um. En ég er ekki sannfærður um að launin segi hér alla söguna. Ég er ekki viss um að læknar komi heim fyrir eitthvað betri laun. Ég efast um að það dugi.“ Kristján nefnir að ungir læknar tilheyri kynslóð sem hugsi á öðrum nótum en þeir sem eru að ljúka starfsævi sinni. Laun séu eitt, en hafa verði í huga að umgjörðin, bæði í samfélaginu og á vinnustaðnum, skipti ekki minna máli. „Það hefur verið neikvæðni í kringum spítalana, menn þekkja líka að tækjakostur þeirra er ófullnægjandi. Þetta eru atriði sem skipta miklu máli,“ segir Kristján. Um 340 læknar sinna sérfræðilækningum hérlendis, en sá fjöldi hefur verið nær óbreyttur um árabil. Af þeim vinna 200 læknar hlutastörf á heilbrigðisstofnunum. Læknar sem starfa á Íslandi eru um 1.200 talsins.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Innlent Fleiri fréttir Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sjá meira