Fólk öskraði, grét og hló taugaveiklunarhlátri Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 18. nóvember 2013 14:50 Óttar segir fólk hafa verið hrætt milli fyrstu lendingartilraunarinnar og tilkynningar flugstjórans. „
Í lendingunni var bara bilað veður, blindhríð og læti og í miðju kafi var allt í einu hætt við að lenda, flugvélin rifin upp og fólk varð verulega hvekkt,“ segir rithöfundurinn Óttar M. Norðfjörð í samtali við fréttastofu. Hann var farþegi í flugi Wow Air sem neyddist til að lenda á Akureyri vegna slæmra veðurskilyrða í Keflavík í gær. Vélin var að koma frá London. Flugstjórinn gerði tvær lendingartilraunir í Keflavík áður en hætt var við að reyna frekari lendingar og vélinni flogið til Akureyrar þar til veðrinu slotaði. „Maður hefur oft heyrt af sambærilegri reynslu frá öðrum og lesið um svona erfið flug en þarna lendir maður í þessu sjálfur og þakkar fyrir að við stjórnvölin sé hæft fagfólk sem kann að taka réttar ákvarðanir,“ sagði Óttar. Hann segir fólk hafa verið hrætt, sérstaklega eftir fyrri lendingartilraunina en tíminn sem leið milli hennar og þar til flugstjórinn gat gefið sér tíma til að útskýra hvað væri í gangi, tók á. „Það er náttúrulega í mannlegu eðli að bregðast á mismunandi hátt við svona aðstæðum, sumir öskruðu, aðrir hlógu taugaveiklunarhlátri og einhverjir fóru að gráta. Ég veit ekkert hvort við vorum í einhverri raunverulegri hættu, en þegar maður hefur svona litla stjórn á aðstæðum þá fer maður ósjálfrátt að ímynda sér það versta,“ sagði Óttar. Flugstjórinn tilkynnti eftir seinni misheppnuðu lendingartilraunina að flogið yrði til Akureyrar þar til veðrinu slotaði. Eftir eins og hálfs tíma bið á Akureyri var síðan að lokum lent heilu og höldnu í Keflavík. „Það var samt sem áður mikið rok og veðrið í það versta en flugmennirnir náðu samt blessunarlega að lenda og eiga hrós skilið fyrir sína frammistöðu. Þegar við gengum svo út úr vélinni fundum við hvernig vélin iðaði öll út af vindkviðum, snjókomu og ofanhríð,“ sagði Óttar og bætti við: „Þetta er kannski bara fylgifiskur þess að búa á Íslandi en ekki Kanarí þar sem alltaf er sól.“
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Innlent Fleiri fréttir Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sjá meira