Búið að veiða um 40 tonn í Kolgrafafirði Jóhanna Margrét Einarsdóttir skrifar 25. nóvember 2013 06:00 Síldveiðar smábáta gengu vel innan brúar í Kolgrafarfirði um helgina. Ekki hefur orðið vart við dauða síld í firðinum. Spáð er vætusömu og fremur hvössu næstu daga sem ætti að draga úr hættu á síldardauða. Tómas Freyr/Fréttablaðið „
Við fáum 80 þúsund krónur fyrir tonnið af síldinni og af þeim hirðir ríkið 20 þúsund. En Þetta eru alveg ótrúlega skemmtilegar og spennandi veiðar. Annað hvort er netið fullt af síld eða það er ekkert “ segir Magnús Snorrason skipstjóri á Sigga afa, 6 tonna smábát sem gerður er úr frá Stykkishólmi. Magnús er einn þeirra smábátasjómanna sem hafa verið að síldveiðum fyrir innan brú í Kolgrafafirði. Enginn veit hversu mikið er af síld í firðinum en menn telja það gætu verið allt að hundrað þúsund tonn. Sjö til átta smábátar hafa verið við veiðar fyrir innan brúna í gær og fyrradag. Í gærkvöldi var búið að landa um 40 tonnum af síld úr Kolgrafafirði í Grundarfirði og í Stykkishólmi. „Það var mokveiði í gærmorgun en þegar leið á daginn datt botninn úr veiðunum,“ sagði Magnús. Bjarni Sigurbjörnsson bóndi á Eiði í Kolgrafafirði segir að mönnum hafi verið létt þegar fór að hvessa og rigna í gær. „Við erum rosalega ánægð með svona veður þá er meira súrefni í sjónum og líkurnar á því að síldin drepist minnka,“ segir Bjarni. Hann segir að hans fyrsta verk í gærmorgun hafi verið að fara út og gá hvort að dauða síld hefði rekið á land. „Mér létti þegar ég sá enga síld og kættist mjög þegar ég sá 12 erni sem voru á sveimi yfir firðinum,“ segir Bjarni. Í dag eða morgun verður tekin ákvörðun um hvort að reynt verður að koma upp löndunaraðstöðu í Kolgrafafirði. Bjarni segir að búið sé að finna stað sem gæti hentað vel þess að koma slíkri aðstöðu upp. Hafsteinn Garðarsson hafnarstjóri í Grundarfirði segir að síldin úr Kolgrafafirði sé bæði stór og góð og fari öll til manneldis. Ekki er aðstaða til að vinna hana í Grundarfirði svo hún fer beint upp á vörubílspall og er ekið með hana til Akraness og í Þorlákshöfn. Síldinni sem landað er í Stykkishólmi er unnin á staðnum. Sjávarútvegsráðherra leyfði smábátum frjálsar síldveiðar innan brúar í Kolgrafafirði í fjóra daga á föstudag og rennur leyfið út á morgun. Landssamband smábátasjómanna hvetur þá sem hafa hug á að halda veiðunum áfram að snúa sér þegar stað til Fiskistofu og sækja um leyfi fyrir því magni af síld sem þeir hyggjast veiða.
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Innlent Fleiri fréttir Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Sjá meira