Leiklestur með rjóma íslenskra leikkvenna á afmælisdaginn Kjartan Atli Kjartansson skrifar 25. nóvember 2013 00:00 Hlín fékk þessar sex leikkonur til að leiklesa á afmælisdeginum sínum.
Hlín Agnarsdóttir leikstjóri hélt upp á sextugsafmæli sitt með afar nýstárlegum hætti um helgina. Hún stóð þá fyrir leiklestri á leikverki sínu sem ber titilinn Oní uppúr. Sex afar vinsælar leikkonur lásu verkið: Elva Ósk Ólafsdóttir, Steinunn Ólafsdóttir, Margrét Guðmundsdóttir, Kristbjörg Kjeld, Edda Björgvinsdóttir og Harpa Arnardóttir. Hlín segir þetta hafa verið afar skemmtilegan afmælisdag. „Þetta var ólýsanlegt. Þarna var rjóminn af íslenskum leikkonum saman kominn. Margrét Guðmundsdóttir var líka að fagna áttræðisafmælinu sínu, hún átti afmæli fyrir stuttu. Þannig að þetta var sannkölluð stórafmælissýning,“ segir Hlín. Hún hefur reynt að fá verkið sýnt en hefur ekki enn haft erindi sem erfiði. „Þetta verk er óður til sundmenningar íslenskra kvenna, það gerist allt í kvennaklefa í sundlaug. Ég hef mikið reynt til þess að fá það sýnt og þessi leiklestur var eiginlega mín síðasta tilraun, þarna var ég að kveðja verkið.“ Hlín segist ekki vita af hverju það gangi svona illa að fá verkið sýnt. „Ég veit ekki hvort þetta sé ótti við að þarna séu konur á öllum aldri. Fyrsta spurningin sem ég fæ alltaf í sambandi við verkið er hvað ég ætli að gera í nektinni. Ég er ekki að pæla í neinni nekt. Nektin er bara hluti af lífinu,“ segir Hlín. Hún heldur þó enn í vonina og telur verkið eiga erindi við almenning. „Auðvitað er það mín helsta ósk að geta sett þetta upp. Ég fann það og skynjaði á viðbrögðum þeirra sem voru viðstaddir leiklesturinn að þetta virkar mjög skemmtilega,“ segir Hlín.
Mest lesið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Lífið Barnastjarnan Kaylee Hottle látin Lífið Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið Lífið Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið Lífið Feimnin við að rukka: Ekki treysta á „ég borga þetta og þú næsta“ Áskorun „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Lífið Stefnir með sjö fjölskyldum aftur á Unglingalandsmótið Lífið samstarf „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Lífið Stríðið um baðstrendur Ítalíu Lífið Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Lífið Fleiri fréttir Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Vansæll á sumum af stærstu augnablikum lífs síns Krakkatía vikunnar: Lilo, Akkilles og risaskordýr Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Olivia Rodrigo á Íslandi Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Sjá meira