Skiptir máli hvaða upplýsingum er lekið Heimir Már Pétursson skrifar 25. nóvember 2013 14:26 Birgitta segir bæði lekann sjálfan og þær persónuupplýsingar sem lekið var alvarlegt mál. mynd/valli
Þingmenn Pírata krefjast þess að Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra og ráðuneytisstjóri innanríkisráðuneytisins verði kölluð fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis í þessari viku, vegna leka á upplýsingum um tvo hælisleitendur í Fréttablaðinu í síðustu viku. Birgitta Jónsdóttir þingmaður Pírata segir nauðsynlegt að fá skýr svör um hvaðan lekinn kom. „Út af því að þarna erum við að tala um leka á mjög viðkvæmum persónuupplýsingum fólks sem er í mjög viðkvæmri stöðu. Það hefur aldrei gerst áður að leki á þennan hátt hafi komið úr ráðuneytinu sem varðar svona persónulegt mál,“ segir Birgitta. Birgitta segir málið lykta af pólitík og upplýsingarnar hafi verið settar fram til að sverta viðkomandi einstaklinga, karl og konu, sem séu hælisleitendur á Íslandi. En karlinn var eftilýstur þar sem vísa átti honum úr landi. En gæti lekinn ekki komið annars staðar frá, t.d. frá Útlendingastofnun? „Við þurfum bara að fá svör við því. Útlendingastofnun heyrir undir þetta ráðuneyti. Þannig að við getum vonandi fengið almennilegar upplýsingar um hvaðan þetta kemur og þeir sem eru ábyrgir fyrir því þá kallaðir til ábyrgðar,“ segir Birgitta. Birgitta segir bæði lekann sjálfan og þær persónuupplýsingar sem lekið var alvarlegt mál. „Og það sem mér finnst eiginlega ósmekklegast er að gefa í skyn að viðkomandi aðili sé ekki faðir barns,“ segir hún. Það sjái allir hvað þetta sé alvarlegt mál, ef til dæmis lekið hefði verið upplýsingum um Íslending í forræðisdeilu við milli landa.En maður hefði haldið að Píratar og þá þar með þú, stydduð leka á gögnum? „Það er gríðarlega mikill misskilningur á því hvers eðlis lekar eru. Ég er mjög hlynnt því að það ef það eru upplýsingar sem varða almannahag sé komið áleiðis. Segjum spillingarmál, eða eins og t.d. lánabók Kaupþings sem var mjög gagnlegt að gerð var aðgengileg blaðamönnum og öðrum sem höfðu vit á að rýna í þær upplýsingar,“ segir Birgitta. Allt öðru máli gegni um persónuupplýsingar sem snerti ekki almannahagsmuni.
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira