Sammála um að svigrúm til launahækkana sé ekki mikið Eva Bjarnadóttir skrifar 26. nóvember 2013 06:00 Fundur ASÍ og SA Mynd/Daníel Rúnarsson
Forystufólk Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins hélt fund um komandi kjarasaminga með ríkissáttasemjara í gær. Rætt var um svigrúm til launahækkana og mikilvægi aðhaldssemi í verðlagsákvörðunum ríkis, sveitarfélaga og fyrirtækja. Viðræðunefnd SA og ASÍ hittist á óformlegum fundi til þess að ræða vinnuáætlun viðræðnanna. Ákveðið var að nefndin hittist aftur í dag. „Þetta var ágætt upphaf en það er alveg ljóst að mat manna á stöðunni er mjög misjafnt,“ segir Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir samtökin ekki hafa sett fram kröfur um launaliðinn á þessari stundu en markmiðið með fundinum hafi verið að átta sig á stöðunni. Tímarammi viðræðnanna hefur ekki verið settur, en aðilar höfðu áður sett sér sameiginlegt markmið um að ljúka viðræðum fyrir lok samningstímans, sem lýkur 30. nóvember næstkomandi. „Það er ótímabært að segja til um það hversu langan tíma þetta mun taka, en það er ljóst að þetta verður mikið verkefni. Í okkar huga er mikilvægara að ná góðri niðurstöðu, þótt það taki tíma,“ segir Þorsteinn, en bætir því við að viðræðurnar séu komnar á fulla ferð og að það muni ekki standa á þeim að vinna eins hratt og kostur er. Á fundinum voru launahækkanir ræddar í þaula og segir Þorsteinn ljóst að aðilar leggi ólíkt mat á svigrúmið til hækkana. Mönnum beri þó saman um að svigrúmið sé ekki mikið. „Það er bara verkefni sem við vinnum úr í framhaldinu,“ segir Þorsteinn. Aðilar eru almennt sammála um að verðlagsþróun á samningstímanum skipti sköpum um trúverðugleika kjarasamninga. Verðlagsákvarðanir ríkis, sveitarfélaga og fyrirtækja skipti höfuðmáli og því mikilvægt að þessir aðilar sýni aðhaldssemi í þeim efnum. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir nauðsynlegt að ræða hvernig fyrirtækin komi til móts við launþega með verðlækkunum. Mörg sveitarfélög hafi hlýtt kalli Reykjavíkurborgar um verðskrárlækkanir en ekkert hafi heyrst frá stærstu fyrirtækjum landsins. „Ætla þau að gefa út yfirlýsingu um að þau ætli ekki að velta launahækkunum út í verðlag?“ spyr Gylfi. „Þau gætu lýst því yfir hvert fyrir sig. Það yrði gott innlegg í þessa vegferð,“ segir hann.
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira