Ég held að þeir verði steinsofandi á þessum tíma Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. ágúst 2013 06:00 Hermann Hreiðarsson þjálfar lið ÍBV. Mynd/Daníel
ÍBV og FH mætast í dag á Hásteinsvellinum í Vestmannaeyjum í 14. umferð Pepsi-deildar karla og er þetta í fyrsta sinn sem spilað er á miðri Þjóðhátíð. „Það verður nóg af gæslumönnum og þrisvar sinnum fleiri lögreglumenn en venjulega. Við höfum engar áhyggjur af þessu,“ segir Örn Hilmisson sem er yfir öryggismálunum á leiknum í dag. Örn hefur ekki áhyggjur af ölvuðum mönnum sem gætu reynt að hlaupa inn á völlinn. „Ég held að þeir verði steinsofandi á þessum tíma,“ segir Örn í léttum tón og bætir svo við: „Það er æðislegt að þessi leikur geti farið fram á þessum tíma.“ Örn býst við að áhorfendur verði fleiri en 2.600. „Það verða eflaust einhverjir í skotastúkunni en ef þeir eru innan svæðisins fyrir aftan gömlu stúkuna þá verða þeir bara rukkaðir. Þeir sem eru að fara inn í dal fara í gegnum trekt og það verður öflug gæsla sem stýrir þeim í gegn. Ef menn ætla að komast hjá því að borga inn á leikinn þá verða þeir bara handrukkaðir,“ segir Örn hlæjandi. „Það er ekkert að því að vera með leik á Þjóðhátíð. Við fengum einn leik um sjómannadagshelgina, tvo leiki á goslokahelginni og annar þeirra var Evrópuleikur og svo fáum við þennan leik núna,“ segir Örn kátur og klár í slaginn í dag. Leikur ÍBV og FH hefst klukkan 14.00 og er í beinni á Stöð 2 Sport.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Freyr fagnaði eins og óður maður í leikslok Fótbolti Segir kominn tíma fyrir John Terry að fara að læra leikreglurnar Enski boltinn „Ísland breytti lífi mínu“ Íslenski boltinn Nýliðarnir eyða meira en Manchester United Enski boltinn „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Körfubolti Setti sjálfan sig á lista yfir hörmulegustu félagaskiptin Enski boltinn Flaug á hausinn á brautinni í gær en vann EM-gull í kvöld Sport Dregur stuðning við Infantino til baka og krefst rannsóknar Fótbolti Draumur að vinna með José Mourinho Fótbolti Er Enzo Fernandez tveggja Rodri virði? Enski boltinn Fleiri fréttir Þór/KA fær til sín leikmann frá Bandaríkjunum „Þetta eru leikirnir þar sem bestu leikmennirnir vilja vera bestir í“ „Ísland breytti lífi mínu“ Uppgjörið: Víkingur - Þór/KA 0-3 | Slitu sig frá fallsvæðinu og juku eymd Víkings Tryllt stemning og töfrandi taktar á N1 mótinu á Akureyri Sjáðu geggjað mark Gylfa í sigri Víkings Stefnir langt í Evrópu og á Íslandsmeistaratitil Fær hjartaáfall við að horfa á varnarleik KR Markaveisla í toppslagnum og æsispennandi toppbarátta Þrótturum mistókst að komast á toppinn Uppgjörið: ÍBV-Stjarnan 3-2 | Eyjakonur upp í þriðja sætið Uppgjörið: Víkingur-FC Thun 3-2 | Evrópudeildardraumurinn úti Uppgjörið: Nordsjælland – Valur 5-0 | Ekki léttir í lund í Kaupmannahöfn Elvis kominn í Bítlabæinn Stelpurnar tóku yfir Akureyri Hnéhlífarnar nauðsynlegar er teymi Víkings hleypur fyrir Ingvar Fögnuðu sigri og tilkynntu Úlfu Dís eftir leik Öll lið lenda í þessu Uppgjörið: Breiðablik - Grindavík/Njarðvík 1-0 | Katelyn Duong hetja Blika Dagný Brynjars snýr aftur í fótboltann Uppgjörið: Þróttur-Valur 3-2 | Fyrsti sigur Þróttar í 75 daga Uppgjörið: Fram-FH 4-6 | Ótrúleg markasúpa á Lambhagavelli Fékk atvinnutilboð erlendis og hættir með kvennalið Keflavíkur Þórsarar fá annan Víking norður Þróttarar fá Björgeyju Njálu aftur heim Keflvíkingar bæta við sig Króata Staðfestir brottför Gunnars: „Einn besti varnarmaður frá upphafi“ Ásdís Karen til FH Um ótrúlegt met KR: „Langskemmtilegustu leikirnir“ Martröðin í Kasakstan þjappaði Blikum saman Sjá meira