"Hikum ekki við að gera athugasemdir þegar við á“ Hödd Vilhjálmsdóttir skrifar 3. ágúst 2013 19:34
Fjármálaeftirlitið fylgist vel með framkvæmd fjármálafyrirtækja á endurútreikningum á gengislánum og mun ekki hika við að gera athugasemdir ef við á. Til þess að útkljá hin svokölluðu gengislánamál var ákveðið á síðasta ári að rekin yrðu fyrir dómstólum ellefu prófmál, sem voru talin til þess fallin, að leysa úr ágreiningsefnum sem snéru að endurútreikningum á lánunum. Í fréttum Stöðvar tvö á miðvikudag sagði lögmaðurinn Einar Hugi Bjarnason það skjóta skökku við að fjármálafyrirtækin hafa nú fellt niður átta af þessum ellefu prófmálum, en beri jafnan fyrir sig að ekki sé hægt að ráðast í endurútreikninga á lánunum vegna réttaróvissu. Tvö málanna eru enn í gangi í réttarkerfinu. Haldi fjármálafyrirtækin áfram að bera fyrir sig réttaróvissu eftir að niðurstaða fæst úr þessum tveimur málum, mun það þá verða til þess að Fjármálaeftirlitið grípi inn í? Rúnar Guðmundsson, aðstoðarframkvæmdastjóri eftirlits hjá Fjármálaeftirlitinu segir að eftirlitið hafi núna um langan tíma fylgst með framkvæmdinni. „Hvað eftirlitsskyldir aðilar eru að gera varðandi endurútreikning lána og þess háttar. Ef að til þess kemur að okkur sýnist eftirlitsskyldur aðili að ósekju vera að draga lappirnar þá heyrir það undir okkur að gera athugasemdir og ég vil segja að við hikum ekki við að gera athugasemdir þegar við á“, segir Rúnar. Komi upp sú staða að það liggi fyrir að fjármálafyrirtækin séu að draga lappirnar getur Fjármálaeftirlitið, á grundvelli ákvæða um eðlilega og heilbrigða viðskiptahætti, gert athugasemdir og úrbótakröfu. „Og við getum fylgt þeirri úrbótakröfu eftir. Ég er ekki að segja að sú staða sé komin upp, en við fylgjumst með þessu“.
Mest lesið Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Erlent Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Erlent Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Innlent Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Innlent Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Innlent Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Innlent Fleiri fréttir Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Erlendir ríkisborgarar flestir í Mýrdalshrepp og fæstir í Kjósarhrepp Aðalmeðferðin heldur áfram í Reykholtsmálinu Meirihluti telur hitamet og gróðurelda vegna loftslagsbreytinga Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Hljóðupptökur, ný vínbúð og færri sturtuðu niður yfir almyrkva Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Allt gert til að stöðva birtinguna Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Hjón skildu fimm ára dreng eftir í bíl: Málið á borði breskra yfirvalda Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Loka brúnni yfir Borgarfjörð í tvær nætur Um sextán þúsund greitt atkvæði utan kjörfundar Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Ákafir þátttakendur beggja fylkinga rugli fólk viljandi í ríminu E. coli fannst í neysluvatni á Borgarfirði eystra Popúlismi í aðdraganda þjóðaratkvæðis og hvalkjöt í töfluformi Tekur við viðskiptadeild Bifrastar eftir átakavetur Engir gallar á kosningu til heimastjórnar Seyðisfjarðar Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Handtekinn vegna kannabisræktunar í Króksfjarðarnesi Bogi Ísak Nilsson er látinn Sjá meira