Mengunarslys tíðari en almennt hefur verið talið 3. júní 2013 09:30 Mengunarslys varð á bílastæði við Bláfjöll þegar verið var að flytja olíu að ferðaþjónustu við Þríhnúk. Mynd/OR
Mengunarslys innan vatnsverndarsvæðis höfuðborgarsvæðisins eru tíðari og olíuflutningar um svæðið umfangsmeiri en margur heldur. Umsvif og umferð á verndarsvæðunum eru mikil og þeim fylgir stöðug mengunar- og slysahætta. Þetta kemur meðal annars fram í ítarlegri skýrslu sem Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar og Kópavogs (HHK) vann um olíuslysið á Bláfjallavegi 8. maí síðastliðinn. Guðmundur H. Einarsson, framkvæmdastjóri HHK og einn skýrsluhöfunda, segir að samantektin hafi ekki síst verið unnin vegna almennrar umræðu eftir slysið og til þess að minna á þær úrbætur sem nauðsynlegar eru. „Hins vegar er það okkar skoðun að atvikið 8. maí var klárlega slys, við getum ekki komist að annarri niðurstöðu,“ segir Guðmundur og segir mikinn mun á atvikinu og því þegar um göslaragang er að ræða sem fer illa. Auk nákvæmrar lýsingar á atburðarásinni 8. maí, og þeim aðgerðum sem fylgdu í kjölfarið, er í skýrslunni almennt fjallað um slys og flutninga á vatnsverndarsvæðinu. Tekin eru dæmi um stóra olíuleka þar sem hreinsunaraðgerðir voru reyndar en voru árangurslausar. „Þá er þekkt að jeppar og fólksbílar hafa ekið út af vegum í Heiðmörk og meðal annars hafnað í Elliðavatni og að kveikt hafi þar verið í aflóga bifreiðum,“ segir þar. Olíuflutningar um fjarsvæði vatnsverndar eru meiri en fólk ætlar, segir í skýrslunni. Á annan tug fulllestaðra olíubifreiða aka eftir Suðurlandsvegi dag hvern; stærstu bifreiðarnar bera 32 rúmmetra af eldsneyti. Vegna aksturs ökutækja er jafnframt alltaf mikil olía inni á vatnsverndarsvæðum. Á sama tíma uppfylla vegir í Bláfjöllum ekki öryggiskröfur. „Þeir eru víða hreinlega hættulegir og það væri nánast hending ef tækist að hreinsa upp olíu að einhverju ráði ef slys verða,“ segir einnig í skýrslunni. Um veginn fara nokkur hundruð bílar á dag. Þá er sérstaklega tekið til þess að flug yfir svæðið er mikið og fer vaxandi. „Ýmis áform eru enn frekari ógn. Þar má helst nefna stækkun suðvesturlína þvert yfir grannsvæði vatnsbóla og hugmyndir um flugvöll á Hólmsheiði með aðflug yfir verndarsvæðin,“ segir þar einnig og bætt við að þekking og tækjabúnaður verði að vera til staðar til að lágmarka skaða. Helst má draga úr hættunni með því að vatnsverndar sé betur gætt í skipulagsáætlunum og úrbætur gerðar í samgöngumálum, er niðurstaðan samandregin. Mengunarslys í nýliðnum mánuði Verið var að flytja tank með 600 lítra af dísilolíu neðan í þyrlu að ferðaþjónustu við Þríhnúk. Tankurinn féll niður úr nokkurra metra hæð. Kom hann niður á bílastæði og brotnaði með þeim afleiðingum að olía rann niður. Með hreinsunaraðgerðum náðist að hreinsa upp verulegan hluta þeirrar olíu sem fór niður.
Mest lesið Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Innlent Agnes var meira en bara morðingi Innlent Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leðurblöku á andlitinu Erlent Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Innlent Reyndist ekki vera hópuppsögn Innlent Vasaþjófar sem herja á ferðamenn engir amatörar Innlent Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Innlent Klausturbleikjan fæst ekki lengur Innlent Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Innlent Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent Fleiri fréttir Heilsustofnunin í Hveragerði fær langtímasamning Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Reyndist ekki vera hópuppsögn Frumniðurstöður kalli á dýpri umræðu um verðlagningu olíufélaganna Tugir vilja feta í fótspor Fannars Vasaþjófar sem herja á ferðamenn engir amatörar Villti á sér heimildir sem eftirlitsmaður Ekki hægt að fullyrða að bensínlækkunin hafi skilað sér Ein hópuppsögn í júní Koma eigi í veg fyrir skólaforðun barna með samræmdum viðbrögðum Flúði á Hopp-deilibíl eftir innbrot og ók yfir göngubrú Agnes var meira en bara morðingi Saka ríkisstjórnina um svik Nemendum mismunað með ósamræmi einkunna Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Fylgi Sjálfstæðisflokks ekki meira í sex ár „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ „Skráningum rignir inn“ Eftirspurn eftir kókaíni virðist aldrei hafa verið meiri Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Sjá meira