Verktaki látinn lána Hafnarfjarðarbæ fé GAR skrifar 3. júní 2013 09:30 Margrét Gauja Magnúsdóttir og Rósa Guðbjartsdóttir. Íbúar við Strandgötu hafa lengi krafist endurbóta sem nú verða að veruleika. Bæjarfulltrúar deila um réttmæti þess að færa hluta kostnaðarins yfir á næsta ár. Fréttablaðið/Valli „
Nú virðist eiga að gera allt sem hægt er til að klára hluti og láta þá líta vel út á komandi kosningavetri,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, um samninga sem fela í sér að verktaki við endurbætur á Strandgötu í sumar fær ekki greitt að fullu fyrr en á næsta ári. Bærinn ætlar í samstarfi við Vegagerð ríkisins, sem á Strandgötuna, að gera sérstaka húsagötu sem rýmkar til fyrir íbúa syðst á Strandgötu og bætir öryggi gangandi og hjólandi fólks. Í útboði var skilmáli um að verktakinn lánaði helming tilboðsfjárhæðarinnar í fjóra og hálfan mánuð eftir verklok í haust. Lægsta tilboðið var tæpar 70 milljónir króna frá Gröfu og grjóti ehf. Vegagerðin greiðir helming þess. Að viðbættum hönnunarkostnaði verður hlutur bæjarins 48 milljónir. Af þeim fær verktakinn 29 milljónir en ekki fyrr en á næsta ári. Rósa Guðbjartsdóttir segir þetta mál styðja það sem sjálfstæðismenn hafi sagt en meirihluti Samfylkingar og VG ekki viljað kannast við. „Við höfum kallað þetta afneitun. Að sveitarfélag af þessari stærðargráðu þurfi að fara svona að í ekki viðameiri framkvæmd er dapurlegur vitnisburður um þá fjárhagsstöðu sem búið er að koma bænum í og skýrt dæmi um að menn velti vandanum á undan sér,“ segir Rósa. Margrét Gauja Magnúsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingar og formaður umhverfis- og framkvæmdaráðs, þar sem málið var samþykkt, segir meirihlutann alls ekki í afneitun varðandi stöðu bæjarins. Stakkurinn sé þröngt sniðinn en íbúar við Strandgötu hafi lengi kallað eftir úrbótum sem bæta öryggi. Vegagerðin sé reiðubúin að setja fé í framkvæmdina á þessu ári. Bærinn hafi notað sams konar aðferð áður í bæði íþróttahús í Kaplakrika og við Engidalsskóla. „Þegar við fengum greiðslur frá Vegagerðinni stukkum við til. Það hefur ekkert með væntanlegar kosningar að gera,“ segir Margrét Gauja.
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Fleiri fréttir Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól Sjá meira