Flugvirkjafélag Íslands fer með samningsaðild 3. júní 2013 14:24 Flugvirki að störfum.
Félagsdómur hefur komist að þeirri niðurstöðu að Flugvirkjafélag Íslands fari með samningsaðild fyrir flugvirkja sem starfa hjá Flugmálastjórn við gerð kjarasamnings við fjármálaráðuneytið. Þetta er niðurstaða dóms sem kveðinn var upp sl. fimmtudag. Flugvirkjafélag Íslands (FVFÍ) höfðaði mál gegn ríkinu til þess að fá kjarasamningsaðild þessa viðurkennda. Hafði stéttarfélagið um árabil krafist þess ítrekað fyrir hönd flugvirkjanna að gerður yrði kjarasamningur við þá, en flugvirkjarnir hafa fram til þessa starfað hjá stofnuninni án kjarasamnings. Flugmálastjórn hafði fallist á þá málaleitan félagsins en fjármálaráðuneytið hins vegar ávallt synjað um gerð kjarasamnings. Hér fyrir neðan má lesa tilkynningu frá stjórn Flugvirkja. „Það er ánægjulegt að þessu gamla baráttumáli okkar sé loksins lokið með þessari niðurstöðu. Þetta eyðir þeirri óþægilegu óvissu sem flugvirkjar hjá Flugmálastjórn hafa þurft að búa við þegar komið hefur að samningsmálum,“ segir Reynir G. Brynjarsson, stjórnarmaður FVFÍ. Í niðurstöðu sinni kemst Félagsdómur að þeirri niðurstöðu að FVFÍ eigi rétt til samningsaðildar samkvæmt heimild í lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna, enda sé félagið fagstéttarfélag flugvirkja á landsvísu og uppfylli að öðru leyti skilyrði fyrir samningsaðild. Í niðurstöðunni voru takmarkanir á fjölda félagsmanna starfandi hjá ríkinu samkvæmt lögunum ekki taldar setja samningsaðild FVFÍ skorður, enda yrði að túlka slíkar takmarkanir þröngt með hliðsjón af stjórnarskrárvörðu félagafrelsi manna, sem einnig væri varið af Mannréttindasáttmála Evrópu. Takmarkanirnar yrði einnig að túlka þröngt með vísan til meginreglu samningaréttarins um samningsfrelsi. Þá féllst dómurinn ekki á þau sjónarmið ríkisins að meint bann við verkfallsrétti eða að flugvirkjarnir hefðu eftirlit með öðrum flugvirkjum stæðu í vegi fyrir samningsaðild Flugvirkjafélags Íslands.
Mest lesið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent Skothvellir við Hvíta húsið Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Sjá meira