Geta dylgjað um kennara í skjóli nafnleyndar og það er tekið alvarlega Þorbjörn Þórðarson skrifar 15. desember 2013 18:30
Nafnlaus tilkynning sem barst um kennara í Norðlingaskóla sem reyndist haldlaus var mjög almenn og ósérgreind. Svo virðist sem hver sem er geti dylgjað um kennara í skjóli nafnleyndar og það sé tekið alvarlega.„Góðan dag, er þetta á skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar? Mig langar að koma að nafnlausri ábendingu um kennara í Norðlingaskóla, Jón Jónsson. Hann á ekki að vinna með börnum. Hann er hættulegur börnum. Skoðið bakgrunn hans. Nei, ég hef ekkert til að bakka þetta upp en þið verðið að koma þessu á framfæri.“ Það var einhvern veginn svona þegar tilkynning barst í gegnum síma inn á skóla- og frístundavið Reykjavíkur um Ragnar Þór Pétursson kennara. Engin gögn eru til um símtalið og ekki var skráð niður nákvæmt efni símtals. Hins vegar var send tilkynning bréflega til Barnaverndar Reykjavíkur sem hóf rannsókn á grundvelli 35. gr. barnaverndarlaga. Þar sem vó þyngst í þeirri ákvörðun var bréfið frá skóla- og frístundasviði.Tjón á mannorði þegar orðið Könnun Barnaverndar eiddi í ljós að ásakanirnar voru úr lausu lofti gripnar og málið fellt niður. Engu að síður var orðið tjón á mannorði kennarans og hann sagði starfi sínu lausu í stað þess að hefja aftur störf í Norðlingaskóla. Um var að ræða vinsælan kennara sem naut virðingar í starfi. Ragnar Þorsteinsson formaður skóla- og frístundasviðs staðfesti í samtali við fréttastofu í gær að ekki hefði verið gert skriflegt minnisblað um efni símtals og að kvörtunin hafi verið almenns eðlis. Þetta er það ástand sem kennarar í Reykjavík þurfa að búa við. Hver sem er getur í raun hringt inn og sakað nafngreinda kennara um viðbjóðslega glæpi og það er rannsakað. Samkvæmt 21. gr. barnaverndarlaga skal barnaverndarnefnd sveitarfélags, í þessu tilviki Barnavernd Reykjavíkur, taka afstöðu án tafar til þess hvort hefja eigi könnun. Orðin „skal“ og „án tafar“ þýða að þetta er ekki valkvætt. Málið vekur hins vegar upp spurningar um fíltersleysi í stjórnsýslu Reykjavíkurborgar, en tekin var ákvörðun um að senda skriflega tilkynningu áfram til Barnaverndar á grundvelli mjög veikra upplýsinga.Hvers vegna var ekki tekið neitt niður skriflega um efni símtalsins? Í ljós kom að ásökun á hendur kennaranum var haldlaus. Spurningarnar sem blasa við eru þessar: Hvers vegna var ekki tekið neitt niður skriflega um efni símtalsins sem barst? Getur hver sem er hringt og dylgjað um hvaða kennara sem er og það er tekið áfram til Barnaverndar Reykjavíkur ef ástæða er til? Eru það vandaðir stjórnsýsluhættir að taka ekki niður nákvæmar upplýsingar um efni símtala af þessu tagi ef upplýsingarnar eiga að vera grundvöllur formlegrar áframsendingar til annars stjórnvalds, í þessu tilviki Barnaverndar Reykjavíkur? Enginn starfsmaður skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar sem fréttastofa hefur rætt við kann svar við fyrstu spurningunni. Fljótt á litið er svarið við annarri spurningunni jákvætt. Þriðja spurningin er hugarfóður fyrir embættismenn á vegum Reykjavíkurborgar. Skóla- og frístundasvið sendi almenna tilkynningu skriflega til Barnaverndar án þess að efni símtalsins væri þar sérgreint. Halldóra Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur, sagði að nefndin væri yfirleitt tortryggin gagnvart nafnlausum tilkynningum frá þriðja aðila. Hins vegar hafi í þessu tilviki verið um að ræða skriflega tilkynningu stjórnvalds (skóla- og frístundasvið innsk.blm) eftir að símtal barst og því hafi hún verið tekin alvarlega.
Tengdar fréttir Biðlar til fólks að vanda sig „Vöndum okkur. Heift er ekki rétt svar við ranglæti. Heift er ekki rétt svar við neinu." segir Ragnar Þór Pétursson. 14. desember 2013 13:32 Hættir vegna nafnlauss áburðar um barnaníð: Krakkarnir gráta Ragnar Þór kennara Mikill harmur og tregi er nú ríkjandi meðal barna við Norðlingaskóla vegna brotthvarfs hans. 13. desember 2013 14:32 Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira
Biðlar til fólks að vanda sig „Vöndum okkur. Heift er ekki rétt svar við ranglæti. Heift er ekki rétt svar við neinu." segir Ragnar Þór Pétursson. 14. desember 2013 13:32
Hættir vegna nafnlauss áburðar um barnaníð: Krakkarnir gráta Ragnar Þór kennara Mikill harmur og tregi er nú ríkjandi meðal barna við Norðlingaskóla vegna brotthvarfs hans. 13. desember 2013 14:32