Góða veðrið draumur fyrir frjókornin 30. maí 2012 12:07 Oft er hvítt yfir að líta vegna asparfrjóa. fréttablaðið/gva
Magn birkifrjókorna í lofti í Reykjavík síðustu daga hefur verið langt yfir meðaltali. Veðuspá næstu daga veitir frjókornum fullkomnar aðstæður til að dreifa sér. Birkifrjó á landinu hafa tekið við sér í góða veðrinu og því eðlilegt að þeir sem þjást af frjókornaofnæmi finni fyrir því. Á vefsíðu Náttúrufræðistofnunar má fylgjast með gangi mála en samkvæmt mælingum hefur magn þeirra í lofti síðustu sjö daga verið langt yfir meðaltali. Til að mynda losaði um og yfir hundrað frjó í rúmmetra lofts bæði föstudag og laugardag en meðaltal síðustu tuttugu ára eða svo er hins vegar ekki nema rétt yfir tuttugu. Í Fréttablaðinu í dag segir Margrét Hallsdóttir, jarðfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun að magn frjóa nái þó hámarki síðar í ár en hin fyrri og er það helst um að kenna kuldakastinu í byrjun mánaðar. Veðrið undanfarna daga og það sem er spáð næstu daga, hægur vindur, hiti og þurrt loft, veitir frjókornum hins vegar fullkomnar aðstæður til að dreifa sér. Birkitrén eru nú tilbúin að sleppa frjóum en þau eru á misjöfnu þroskastigi eftir svæðum. Í Elliðaárdal er lengra síðan að blómin voru tilbúin á birkinu en í Urriðaholti er birkið rétt að byrja að springa út. Fólk með grasofnæmi þarf þó ekki að hafa áhyggjur af grasfrjóum strax því þau blómstra yfirleitt ekki fyrr en síðla júnímánaðar. Það getur samt sem áður byrjað að undirbúa sig með því að slá grasið í görðum sínum áður en blómin á því springa út og fara að dreifa frjókornum.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Fleiri fréttir Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Sjá meira