Innlent

Jón Gnarr tók á móti Tiersen

BBI skrifar
Yann Tiersen og hljómsveit.
Yann Tiersen og hljómsveit.
Tónlistarmaðurinn Yann Tiersen er kominn til landsins ásamt hljómsveit sinni. Jón Gnarr, borgarstjóri, tók á móti þeim og fleirum í Höfða í síðdegissólinni í dag.  Þaðan var haldið í Hörpu og Norðurljósasalurinn tekinn út fyrir tónleikana á morgun.

Leikhópurinn á bakvið sýninguna Pétur Gaut var einnig við móttökuna í Höfða.

Yann Tiersen var að sögn afar blíður á manninn. Uppselt er á tónleika hans. Þar verður spiluð órafmögnuð efnisskrá sem tileinkuð er nýjustu plötu hans, Skyline.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×